Hlaupið á eftir konum í Bónus - „Staðreynd að íslam leyfir ekki aðlögun að kristni“

Oddviti Miðflokksins í Kópavogi tekur undir með forsætisráðherra Danmerkur um að verið sé að skipta þjóðum út með menningarlegum breytingum og vitnar í reynslu þegar hann bjó í Danmörku. Umræður voru um aðlögun múslima að samfélaginu voru á Samstöðinni, var þar einnig rætt um mörg dæmi um birtingarmyndir fordóma á Íslandi.

„Ég tel nokkuð augljóst að þegar Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, talar um útskipti þá sé hún ekki að vitna í þá kenningu að ríkisstjórnir heimsins séu gagngert að skipta þjóðum út. Hún er að vitna í augljósar lýðfræðilegar og menningarlegar breytingar sem stjórnmálamenn hafa ýtt af stað og þora nú ekki að snúa við af sökum ótta við fyrirsagnir fjölmiðla,“ segir Einar Jóhannes Guðnason, oddviti Miðflokksins í Kópavogi, í færslu á Facebook. 

„Ég bjó sjálfur í Nørrebro í 3 ár og var það merkileg reynsla. Flestar verslanir voru opnar yfir jólin, ég var minnihlutahópur og fékk tvisvar SMS frá lögreglunni sem bað íbúa svæðisins að vera ekki á ferðinni að óþörfu þegar fór að dimma. Á Nørrebrogade var kebab staður sem okkur þótti góður og fékk ég alltaf góða þjónustu. Konan mín fór þó ein tvisvar að grípa mat þaðan á leiðinni heim og mætti hún allt öðru viðmóti en ég af eigendum staðarins. Hún fór ekki ein þangað oftar.“

Hann verslaði ekki við halal-slátrarann eða við tískuverslunina Hijabi Queens.

„Upphrópanir fjölmiðla fara að verða þreyttar þegar bent er á þessa augljósu þróun. Fólki eru gerðar upp skoðanir og almenningi er sagt að treysta ekki eigin upplifunum. Bara í síðustu viku steig fram stúlka frá Íran sem sagði frá líflátshótunum sem hún hefur fengið frá múslimum á Íslandi fyrir það eitt að gagnrýna Íslam,“ segir hann og vísar í nýlegt viðtal við Saqar Yari, konu frá Íran sem er búsett á Íslandi. 

Saqar Yari - Af hverju má ekki tala um íslam? Nýtt á https://t.co/NJuETo6UXG https://t.co/SNGtNVD8bE

— Thorarinn Hjartarson (@TotiHjartar) November 24, 2026

Einar hafnar því að allir eða meirihluti múslima séu vondir einstaklingar. 

„Það er þó staðreynd að íslam leyfir ekki aðlögun að kristni, rétt eins og kristni leyfir ekki aðlögun að íslam,“ segir hann.

„Við höfum séð þróun á hinum Norðurlöndunum og í Evrópu þar sem menningu er bókstaflega skipt út fyrir aðra, tungumálinu er skipt út fyrir annað, lögum landsins er skipt út fyrir önnur og eru jafnvel hverfi sem lögreglan treystir sér ekki til þess að fara inn í.“

„Gamla testamentið er verra fyrir konur en íslam“

Á Samstöðinni í gærkvöldi voru umræður um múslimaandúð á Íslandi þar sem rætt var við fjóra múslima sem búa á Íslandi. Í þættinum spurði Gunnar Smári Egilsson þáttastjórnandi sérstaklega út í hvort múslimar ættu erfiðara með því að aðlagast íslensku samfélagið, uppskar hann hlátur frá viðmælendum sínum.

Erna Huld Ibrahimsdóttir, sem kemur frá Afganistan, svaraði því:

„Það eiga allir rétt á því að gagnrýna trúarbrögð, ef ég hugsa um íslam og stöðu kvenna í íslam, þá á fólk rétt á að gagnrýna og tala um þetta. Ef við skoðum stöðu kvenna og texta í íslam, og bera það saman við Biblíuna eða Gamla textamentið, þetta er bara það sama. Gamla testamentið er verra fyrir konur en íslam,“ segir Erna Huld. 

Saraa Almasri, sem kemur frá Palestínu, segir að hún verði meira vör við fordóma í garð múslima hér á landi.

„Síðustu tvö ár heyri ég miklu meira af fólki vera að tala um múslima,“ segir Saraa en hún hefur verið búsett á Íslandi í sex ár. „Þegar ég kem til landsins þá heyri ég ekki mikið. Eftir þrjú ár þá fer þetta að byrja, fólk að tala og ég bara hlusta, ég svara ekki þegar fólk er að tala svona, ég vil ekki svara því.“

Erna Huld tekur í sama streng. „Því miður er felst fólk, þegar maður segir frá hvaða landi maður kemur, ef stór hluti af íbúum þess lands eru múslimar, þá setur fólk mann strax í einhvern kassa. Í Afganistan er margt fólk sem eru hindúar, það eru ekki múslimar, það er líka fólk sem breytist um trúarbrögð og segist vera kristið eða búddatrúar,“ segir Erna Huld. „Það væri eins og segja að allir Íslendingar væru kristnir, sem er ekki þannig.“

Hún segist stundum verða fyrir fordómum. „Ég var í strætó að tala í símann. Svo kemur til mín maður og spyr mig hvaðan ég sé, ég svara að ég sé frá Afganistan og ég spyr hann á móti hvaðan hann komi, hann svarar á ensku; From hell. Það var ekkert annað, bara From hell, og punktur.“

Saraa kannast líka við mörg svona atvik. „Ég var í Kringlunni með vinkonu minni, sem er líka með slæðu. Þá kom til okkar kona og fer að horfa á okkur. Ég fór því ég vildi ekki vera á sama stað og hún. Svo kom hún aftur til mín og fer að taka mynd af mér,“ segir hún. Konan vildi ekki tala við hana heldur fór í fússi þegar Saraa spurði út í myndatökuna. 

Hlaupið á eftir konum í Bónus

Jasmina Vajzovic, sem vakti nýverið athygli fyrir orðaskipti sín við Elliða Vignisson bæjarstjóra í Ölfusi, segir að hún hafi hlustað á margar svona sögur eins og Erna og Saraa lýsa, það sé ekki lengur hægt að ganga að því vísu að vera öruggur. „Það var ekki jafn áberandi hér áður að fólk talaði svona eins og það gerir í dag,“ segir Jasmina. „Það er stór vandi, það sem fólk leyfir sér stefnir fólki í hættu. Þegar þú ert að hlaupa á eftir konum í Bónus og segja þeim að taka slæðuna af sér því þær eru í kvenréttindindalandi, ég er farin að kalla þetta heimsku. Það er búið að útskýra þetta svo oft, sérstaklega á Íslandi, það eru margar konur sem koma einmitt til Íslands til að njóta þessara réttinda. Samt vilja þær ganga með slæðu. Það er enginn að banna Söru að vera öðruvísi en hún velur þetta sjálf. Það er svo erfitt að rökræða og útskýra fyrir fólki að það gætu verið konur þarna úti sem velja þetta.“

Jasmina segir að dæmið um myndatökuna í Kringlunni vera á ábyrgð stjórnmálamanna sem ali á fordómum í garð múslima, það séu vissulega til dæmi um menn frá Miðausturlöndum sem kúgi konur og það megi ræða það, það sem hún gerir athugasemdir við er að heilu hóparnir . „Það er þegar þeir tala um hópa. Við erum ekki lengur að tala um einstaklinga. Við erum að setja heilu löndin undir glæpasamtök, heilu þjóðirnar sem hryðjuverkamenn eða öfgamenn. Í hvaða heimi á þetta að líðast? Og í hvaða heimi er það rökrétt að hugsa það? Ef við erum að segja að það séu 80% þeirra sem nauðga á Íslandi eru innfæddir, eigum við þá að álykta að allir karlmenn á Íslandi séu nauðgarar? Þetta er nákvæmlega sama dæmi.“

Hér má horfa á þáttinn í heild sinni:

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab