Netárás veldur röskun á þjónustu Reykjavíkurborgar

Gera má ráð fyrir röskun á rafrænni þjónustu borgarinnar næstu daga. mbl.is/Ólafur Árdal

Reykjavíkurborg varð í dag fyrir netárás á hluta tölvukerfa sinna. Um leið og árásin uppgötvaðist var gripið til öryggisráðstafana til að verja kerfi og gögn borgarinnar. Meðal annars var ákveðið að taka fjölda rafrænna þjónustukerfa tímabundið úr sambandi.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Sérfræðingar netöryggisfyrirtækisins Syndis og netöryggissveitarinnar CERT-IS vinni nú ásamt starfsfólki borgarinnar að því að greina umfang árásarinnar, tryggja öryggi kerfanna og koma þjónustu aftur í eðlilegt horf eins fljótt og kostur er.

Vegna þessara ráðstafana megi gera ráð fyrir röskun á rafrænni þjónustu borgarinnar næstu daga. Sum þjónustukerfi kunni að verða óaðgengileg, að öllu leyti eða að hluta, meðan unnið er að því að tryggja öryggi þeirra og virkni.

Nánari upplýsingar verði veittar eftir því sem fram vindur.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab