Viðbragðsáætlun almannavarna virkjuð vegna tíðra netárása með gervigreind - Árás gerð á kerfi Reykjavíkurborgar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og CERT-IS hafa ákveðið að virkja viðbragðsáætlun almannavarna um verndun ómissandi upplýsingainnviða vegna aukinnar notkunar gervigreindar í netárásum á Íslandi og nágrannalöndum sem felur í sér aukna ógn gagnvart íslenskum innviðum og upplýsingakerfum. Hluti tölvukerfis Reykjavíkurborgar liggur niðri vegna netárásar og af þeim sökum er þjónusta skert.
Þetta kemur fram í tilkynningum frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Reykjavíkurborg. Í fyrrnefndu tilkynningunni segir að áætlunin sé virkjuð á óvissustigi almannavarna. Í því felist aukin vöktun og samráð milli Almannavarna, CERT-IS og rekstraraðila ómissandi upplýsingainnviða.
Íslensk fyrirtæki og stofnanir séu um leið hvattar til að yfirfara eigin varnir og hættumat, yfirfara aðgangsstýringar, kerfi opin út á internetið, skýjaþjónustur, og tengingar við þriðju aðila. Auk þess sé mikilvægt að tryggja að vöktun og viðbragðsgeta sé í samræmi við þessa þróun.
Mikilvægt sé að aðilar tilkynni grun um atvik í eigin kerfum til CERT-IS, cert@cert.is eða í gegnum hnapp á cert.is.
Nánari upplýsingar um netógnir vegna gervigreindar má finna hér.
Í tilkynningunni frá Reykjavíkurborg segir að í dag hafi verið gerð netárás á hluta tölvukerfa borgarinnar. Um leið og árásin uppgötvaðist hafi verið gripið til öryggisráðstafana til að verja kerfi og gögn borgarinnar. Meðal annars hafi verið ákveðið að taka fjölda rafrænna þjónustukerfa tímabundið úr sambandi.
Sérfræðingar netöryggisfyrirtækisins Syndis og netöryggissveitarinnar CERT-IS vinni nú ásamt starfsfólki borgarinnar að því að greina umfang árásarinnar, tryggja öryggi kerfanna og koma þjónustu aftur í eðlilegt horf eins fljótt og kostur sé.
Vegna þessara ráðstafana megi gera ráð fyrir röskun á rafrænni þjónustu borgarinnar næstu daga. Sum þjónustukerfi kunni að verða óaðgengileg, að öllu leyti eða að hluta, meðan unnið sé að því að tryggja öryggi þeirra og virkni.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗