Segir KSÍ gera lítið úr konunum með þessu fyrirkomulagi - „Ef það selst upp eru það níu milljónir í kassann“

Miðafyrirkomulag KSÍ fyrir landsleik Íslands og Portúgals á Laugardalsvelli þann 5. desember var til umræðu í Þungavigtinni. Þar gagnrýndu þeir Kristján Óli Sigurðsson og Mikael Nikulásson þá ákvörðun að hafa ókeypis aðgang að leiknum.

Ríkharð Óskar Guðnason vakti athygli á því að umsóknarfrestur um miða hefði runnið út á miðnætti á mánudag og velti fyrir sér hvort fyrirkomulagið væri ekki óvenjulegt.

Kristján Óli tók undir gagnrýnina og taldi að KSÍ ætti frekar að selja miða á leikinn.

„Mér finnst verið að gera lítið úr íslenskri kvennaknattspyrnu með þessu. Af hverju er miðinn ekki seldur á þúsund krónur? Ef það selst upp eru það níu milljónir í kassann,“ sagði Kristján.

Hann benti á að rukkað hefði verið inn á leik karlalandsliðsins gegn Lúxemborg í C-deild Þjóðadeildarinnar.

„Þetta er leikur um að komast inn á HM. Heldur þú að fólk sem hefur áhuga á kvennaknattspyrnu myndi ekki borga sér inn?“

Kristján óttast einnig að margir þeirra sem fá ókeypis miða muni ekki mæta.

„Það verða aldrei meira en fimm þúsund á leiknum. Fullt af þeim sem sótti um miða mun ekki mæta af því að það er frítt.“

Mikael Nikulásson tók í sama streng og velti því fyrir sér hvort sama fyrirkomulag yrði haft á leikjum karlalandsliðsins.

„Mér finnst þetta mjög skrýtið, þetta er sambærilegt lið og Ísland. Ég reikna með því að við fáum England eða Spán í karlaboltanum í undankeppni EM og fáum þá í júní á næsta ári. Þá reikna ég með því að það verði frítt þar inn,“ sagði Mikael.

KSÍ hefur greint frá því að um 8.000 miðabeiðnir hafi borist í almenna úthlutun en aðeins 3.500 sæti séu í boði.

Alls er gert ráð fyrir tæplega 9.600 sætum. Um 3.000 fara til aðildarfélaga KSÍ og 1.200 til bakhjarla sambandsins.

Miðum verður úthlutað í áföngum og ósóttir miðar fara aftur í úthlutun. Markmið KSÍ er að tryggja sem besta nýtingu sætanna.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab