Ólympíumeistari ákærður fyrir líkamsárás

Stefan Holm hefur verið ákærður fyrir líkamsárás.

Stefan Holm hefur verið ákærður fyrir líkamsárás. Skjáskot/SVT

Stefan Holm, Svíinn sem varð ólympíumeistari í hástökki árið 2004, hefur verið ákærður fyrir að hafa ráðist á sjónvarpsmanninn og hlaðvarpsstjórnandann Emil Persson á hóteli.

Ákæruvaldið heldur því fram að Holm hafi gripið um háls Perssons, ýtt honum og togað í skyrtuna hans. Þriggja mínútna myndband úr öryggismyndavél er hluti af sönnunargögnunum.

Átökin snerust um brandara sem áður hafði verið sagður í sjónvarpi og tengdist syni Holms. Holm viðurkenndi að hafa togað í skyrtu Perssons en neitaði því að hafa gripið um háls hans eða ýtt honum.

„Saksóknarinn hefði getað lokið öllu málinu með sektargerð á hendur Stefan fyrir áreitni eða minni háttar líkamsárás. Stefan hefur fallist á það,“ sagði lögmaður hans, David BarDavid. Ekki hefur verið tilkynnt hvenær réttarhöldin fara fram.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab