Virkja viðbragðsáætlun almannavarna vegna netárása
Runólfur Þórhallsson er sviðsstjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og CERT-IS hafa ákveðið að virkja viðbragðsáætlun almannavarna um verndun ómissandi upplýsingainnviða.
Þetta kemur fram í tilkynningu. Ákvörðunin er tekin í ljósi aukinnar notkunar gervigreindar í netárásum á Íslandi og nágrannalöndum sem felur í sér aukna ógn gagnvart íslenskum innviðum og upplýsingakerfum.
Áætlunin er virkjuð á óvissustigi almannavarna. Í því felst aukin vöktun og samráð milli Almannavarna, CERT-IS og rekstraraðila ómissandi upplýsingainnviða.
Áætlunin er virkjuð á óvissustigi almannavarna. Í því felst aukin vöktun og samráð milli Almannavarna, CERT-IS og rekstraraðila ómissandi upplýsingainnviða. AFP
Yfirfara eigin varnir og hættumat
Íslensk fyrirtæki og stofnanir eru um leið hvött til að yfirfara eigin varnir og hættumat, yfirfara aðgangsstýringar, kerfi opin út á internetið, skýjaþjónustur og tengingar við þriðju aðila. Auk þess er mikilvægt að tryggja að vöktun og viðbragðsgeta sé í samræmi við þessa þróun.
Þá sé mikilvægt að tilkynna grun um atvik í eigin kerfum til CERT-IS, [email protected] eða í gegnum hnapp á cert.is.
Nánari upplýsingar um netógnir vegna gervigreindar má finna hér.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
