Virkja viðbragðsáætlun almannavarna vegna netárása

Runólfur Þórhallsson er sviðsstjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra.

Runólfur Þórhallsson er sviðsstjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og CERT-IS hafa ákveðið að virkja viðbragðsáætlun almannavarna um verndun ómissandi upplýsingainnviða.

Þetta kemur fram í tilkynningu. Ákvörðunin er tekin í ljósi aukinnar notkunar gervigreindar í netárásum á Íslandi og nágrannalöndum sem felur í sér aukna ógn gagnvart íslenskum innviðum og upplýsingakerfum.

Áætlunin er virkjuð á óvissustigi almannavarna. Í því felst aukin vöktun og samráð milli Almannavarna, CERT-IS og rekstraraðila ómissandi upplýsingainnviða.

Áætlunin er virkjuð á óvissustigi almannavarna. Í því felst aukin vöktun og samráð milli Almannavarna, CERT-IS og rekstraraðila ómissandi upplýsingainnviða. AFP

Yfirfara eigin varnir og hættumat

Íslensk fyrirtæki og stofnanir eru um leið hvött til að yfirfara eigin varnir og hættumat, yfirfara aðgangsstýringar, kerfi opin út á internetið, skýjaþjónustur og tengingar við þriðju aðila. Auk þess er mikilvægt að tryggja að vöktun og viðbragðsgeta sé í samræmi við þessa þróun.

Þá sé mikilvægt að tilkynna grun um atvik í eigin kerfum til CERT-IS, [email protected] eða í gegnum hnapp á cert.is.

Nánari upplýsingar um netógnir vegna gervigreindar má finna hér.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab