Skaut föstum skotum á City þegar hann fagnaði marki sínu í gær

Rasmus Höjlund, fyrrverandi framherji Manchester United, sendi stuðningsmönnum Manchester City tóninn eftir að hafa skorað fyrir Napoli í 2-2 jafntefli liðanna í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi.

Daninn kom Napoli yfir í síðari hálfleik þegar hann fékk frábæra sendingu frá Billy Gilmour, sneri á Marc Guehi og skoraði fram hjá Gianluigi Donnarumma.

Höjlund fagnaði með því að lyfta einum fingri og virtist hrópa „Það er bara eitt lið í Manchester“ í átt að stuðningsmönnum City.

Hann staðfesti eftir leik að um skot á gamla erkifjendur sína hefði verið að ræða.

„Þetta var bara góðlátlegt grín. Það er mikil samkeppni milli City og United og ég á sögu hjá United,“ sagði Höjlund við TNT Sports.

„United er mitt félag. Ég hef ekkert á móti Manchester City en það var gaman að skora hér.“

Höjlund gekk endanlega til liðs við Napoli í sumar fyrir 38 milljónir punda eftir erfiða dvöl hjá United.

Markið var hans þriðja á tímabilinu í ellefu leikjum.

https://t.co/gp7VXl9eS5

— UnitedAddict (@UnitedAddict99) November 24, 2026

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab