Vandræðalegt fyrir Guardiola

Pep Guardiola.

Pep Guardiola. AFP/Franck Fife

Pep Guardiola, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester City, greindi frá því að hann hefði hafnað boði um að þjálfa karlalið Ítalíu vegna þess að hann þyrfti á hvíld að halda. Hann staðfesti að næsta skref hans yrði að stýra landsliði.

„Mér fannst vandræðalegt að segja nei við Ítalíu,“ sagði Guardiola við Romário, fyrrverandi framherja Brasilíu, á Romario TV.

„Það hefði verið einn mesti heiður ferils míns að þjálfa ítalska landsliðið. En ég áttaði mig á því að ég þyrfti að stoppa.“

Paolo Maldini og Leonardo höfðu samband við hann eftir að hann yfirgaf City í sumar. „Ef þeir hefðu hringt tveimur árum fyrr hefði ég líklega þegið boðið,“ sagði hann.

„Ef ég sný einhvern tímann aftur verður það vegna þess að innsæið segir mér að gera það og vegna þess að einhver vill fá mig,“ bætti Guardiola við.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab