Bræðurnir voru að setja upp jólaljós þegar harmleikurinn varð – Annar látinn og hinn mikið slasaður
Pressan
Miðvikudaginn 25. nóvember 2026 17:30
Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Mynd/Pexels
25 ára karlmaður lést og 22 ára bróðir hans slasaðist mjög alvarlega þegar ökumaður á flótta undan lögreglu ók á bifreið sem þeir voru á í borginni Santander á Spáni aðfaranótt þriðjudags.
Bræðurnir voru að vinna við að setja upp jólaljós í miðborg Santander þegar slysið varð. Ökumaðurinn, 43 ára karlmaður, reyndist vera undir áhrifum áfengis og fíkniefna auk þess sem hann hafði verið sviptur ökuréttindum.
Spænska dagblaðið El País greinir frá þessu.
Lögreglumenn höfðu gert tilraun til að stöðva för mannsins þar sem hann ók um götur borgarinnar með slökkt á ljósunum.
Í stað þess að verða við fyrirmælum lögreglu jók maðurinn hraðann og ók meðal annars yfir gatnamót gegn rauðu ljósi.
Yngri bróðirinn stóð við vinnubifreið fyrirtækisins þegar ökumaðurinn ók á hann og rakst í kjölfarið á bifreiðina. Eldri bróðirinn var uppi á bifreiðinni við að koma jólaljósunum fyrir en við höggið féll hann niður. Hann var úrskurðaður látinn við komuna á sjúkrahús.
Yngri bróðirinn liggur á gjörgæsludeild sjúkrahúss í Santander og er ástand hans sagt mjög alvarlegt.
Ökumaðurinn og kona sem var farþegi í bifreið hans yfirgáfu vettvang fótgangandi eftir slysið. Lögregla hafði uppi á manninum og var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um manndráp af gáleysi, stórfelldan glæfraakstur og fleiri brot.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗