Stuðningsmenn City hafa áhyggjur - Þetta viðtal við Haaland vekur mikla athygli

Erling Haaland, framherji Manchester City, var afar svekktur eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn Napoli í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi.

City hefur aðeins unnið tvo af síðustu sjö leikjum sínum og hefur slæmt gengi liðsins farið illa í norska markahrókinn.

Rayan Cherki bjargaði stigi fyrir City með jöfnunarmarki á 86. mínútu en Haaland var langt frá því að vera sáttur.

„Þegar maður vinnur er fótboltinn einfaldur og maður veit hvað þarf að gera. Þegar maður vinnur ekki fer maður að efast um allt,“ sagði Haaland við TNT Sports.

🗣️ "I have no idea what we were missing. You could feel it in the last few games that there's something that's not clicking fully." @Erling reflects on @ManCity's 2-2 draw with Napoli. 🎤 @AndyKerrtv #UCL | #ManCity https://t.co/Cx2Hzieom3

— beIN SPORTS (@beINSPORTS_EN) November 24, 2026

„Við höfum gríðarleg gæði í liðinu en þurfum að ná þeim fram hjá hverjum einasta leikmanni.“

Haaland, sem bar fyrirliðabandið gegn Napoli, segist finna fyrir mikilli ábyrgð.

„Ég veit ekki hvað okkur vantar. Það er eitthvað sem er ekki að smella og við verðum að finna lausn.“

„Ég vil bara vinna leiki fyrir Manchester City og núna erum við ekki að gera það. Það er sárt.“

Stuðningsmenn City hafa lýst áhyggjum af þungum svip Norðmannsins í viðtalinu.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab