Orðið á götunni: Frábær afkoma í sjávarútvegi – glæsilegt uppgjör Brims en fjölmiðlar segja fátt um það
Þessa daganna eru flestir fjölmiðlar hér á landi uppteknir við að segja neikvæðar fréttir af efnahagslífi og atvinnustarfsemi landsmanna. Svo virðist sem í gangi sé skipuleg aðför að ríkisstjórninni og stjórnarflokkunum sem gengur út að sverta allar fréttir af atvinnulífinu og reyna að koma því inn í vitund landsmanna að hér séu vondar horfur fram undan, og nánast allt svart, þótt fyrir liggi að verðbólga sé farin að lækka og muni lækka hratt í byrjun komandi árs með vaxtalækkun í kjölfarið. Þetta er innan seilingar. Þá verða hallalaus fjárlög afgreidd frá Alþingi um miðjan desember en það hefur ekki gerst í heilan áratug. Staðreyndin er sú að helstu atvinnugreinarnar ganga vel þó að talsmenn sumra þeirra reyni að mála skrattann á vegginn í hvert sinn sem þeir komast í tæri við fjölmiðla. Dæmin eru víða en svo virðist sem fjölmiðlar vilji sem minnst tala um það sem gengur vel og er til fyrirmyndar.
Orðið á götunni er að glæsilegur rekstrarárangur sjávarútvegsrisans Brims sé eitt besta dæmið um góðan rekstur og frábæran árangur. Fyrirtækið birti nýlega upplýsingar um rekstur og árangur á þriðja ársfjórðungi 2026 og heildarárangur eftir fyrstu níu mánuði ársins. Vörusala fyrirtækisins á þriðja ársfjórðungi nam 21,8 milljörðum króna miðað við meðalgengi evru á tímabilinu. Það var 38% aukning frá sama tíma árið á undan. EBITDA tímabilsins nam 6,8 milljörðum króna og hagnaður var 7,6 milljarðar króna sem er nær tvöföldun frá árinu á undan. Vert er að hafa í huga að inni í þeirri fjárhæð er söluhagnaður vegna hlutabréfa í Polar Seafood Denmark sem fyrirtækið seldi á árinu. Þegar litið er á útkomu fyrstu níu mánaða ársins 2026 var heildarsala Brims 56,5 milljarðar króna sem er 34% aukning frá fyrra ári. EBITDA nam þá 15,5 milljörðum króna sem er 57% aukning milli ára. Hagnaður eftir fyrstu níu mánuði ársins er kominn í 13,8 milljarða króna sem er talsvert meira en tvöföldun frá sama tímabili í fyrra. Þann 30. september 2026 nam lausafjárstaða fyrirtækisins 24 milljörðum króna en var rúmir 10 milljarðar króna í lok árs 2025. Þróunin í rekstri og fjárhag fyrirtækisins það sem af er árinu er glæsileg.
Þessar góðu fréttir hafa ekki vakið mikinn áhuga fjölmiðla. Svo virðist sem mun meiri vilji sé til að tala um það sem neikvætt er. Fjallað er um atvinnuleysi en ekki minnst á að það er árviss viðburður að atvinnuleysi aukist heldur á haustin þegar þrýstingur vegna framkvæmda sumarsins er liðinn. Það hefur gerst núna eins og fyrr. Þá eru opinberir aðilar heldur að fækka starfsfólki þar sem því verður við komið til sparnaðar. Gildir það jafnt um sveitarfélög eins og Reykjavíkurborg og ríkið en nokkuð hefur verið um uppsagnir í ráðuneytum og yfirstjórn ríkisins. Full þörf er á því eftir mikla útþenslu hins opinbera síðasta áratuginn. Þá má ætla að útlendingum sem hafa sótt hingað í tímabundna atvinnu og verkefni muni eitthvað fækka og með því minnkar umrætt atvinnuleysi.
Dæmi um þetta eru þau skoðanaskipti sem fram fóru í Silfri RÚV síðasta mánudag. Þá var varpað fram spurningu um ganginn í atvinnulífinu. Björgvin Ingi Ólafsson frá Deloitte varð fyrir svörum og lét nægja að nefna að sjávarútvegurinn gengi vel ekki síst vegna hins háa verðs sem fæst nú fyrir afurðir á erlendum mörkuðum. En hann nefndi ekki góðan gang í öðrum mikilvægum atvinnugreinum frekar en aðrir í þættinum. Sjávarútvegurinn gengur einnig vel vegna mikillar tæknivæðingar og öflugrar vöruþróunar. Og hann nær góðum árangri þó að gengi krónunnar sé einkennilega skráð sem skilar útflutningsgreinunum lægri tekjum en ella.
Ferðaþjónusta er mikilvægasta atvinnugrein þjóðarinnar nú orðið en hún hefur vaxið gríðarlega síðustu 15 árin og skapar mestan gjaldeyri allra atvinnugreina. Fjöldi erlendra ferðamanna verður hinn sami og í fyrra þrátt fyrir hrakspár. Þá hefur hátækniiðnaður verið í örum vexti, meðal annars vegna mikilla fjárfestinga í gagnaverum sem nú eru reist víða um land eins og á Akureyri, Blönduósi og á Suðurnesjum. Vænta má áframhaldandi uppgangs í hátækniiðnaði hér á landi. Sjávarútvegurinn gengur betur en oftast áður. Álverð á heimsmarkaði hefur hækkað mikið sem eflir rekstur álvera hér á landi. Samhliða því aukast tekjur Landsvirkjunar og annarra sem selja álverunum raforku því verð á henni tengist heimsmarkaðsverði á áli að hluta. Mikill kraftur í uppbyggingu glæsilegra landeldisfyrirtækja og útflutningur á laxi eykst stöðugt. Um landeldið ætti að ríkja sátt og friður sem verður seint reyndin varðandi sjókvíaeldið. Góður gangur er í rekstri verslunar og þjónustu að ekki sé talað um banka og vátryggingarfélög sem mala gull eins og fyrri daginn.
Sjá líka:
Orðið á götunni: Atvinnulífið blómstrar á Íslandi þrátt fyrir úrtölur og neikvætt raus stjórnarandstöðunnar
Orðið á götunni er að neikvæða umræðan eigi helst rétt á sér þegar fjallað er um tímabundna offjárfestingu í íbúðarhúsnæði sem selst nú hægar en verktakar gerðu sér vonir um. Í þeirri atvinnugrein verða menn að kunna fótum sínum forráð eins og í öðrum viðskiptum þar sem seljendur varnings verða að haga innkaupum sínum og birgðahaldi þannig að vel fari. Ef fyrirtæki ofreisa sig á þessu sviði er ekki við aðra að sakast en þau sjálf. Þó svo að við blasi nokkur offjárfesting í íbúðarhúsnæði hefur byggingar- og verktakaiðnaður landsmanna mikil og stór verkefni með höndum nú þegar og fram undan. Nefna má brú yfir Ölfusá, brú milli Nauthólsvíkur og Kópavogs, Þjóðarhöll, virkjanir í Þjórsá, gagnaver sem verið er að reisa víða um land, stórfjárfestingar í landeldisfyrirtækjum, Landsspítala, fangelsi og þannig mætti áfram telja. Það eru því engin rök fyrir rausi og kvörtunum.
Orðið á götunni er að fólk verði að átta sig á því að nú stendur yfir skipuleg aðför að ríkisstjórninni og stjórnarflokkunum þar sem reynt er að mála allt í dökkum litum. Þeir sem standa fyrir þessu sjá nú ofsjónum yfir því að senn verða afgreidd hallalaus fjárlög frá Alþingi í fyrsta skipti í áratug og að verðbólga muni fara hratt niður eftir nokkrar vikur og í kjölfarið fara vextir að lækka eins og landsmenn hafa þráð.
Orðið á götunni er að þeir sem standa fyrir aðförinni hafi engan sóma af því. Gildir það jafnt um stjórnarandstöðuna á Alþingi, Morgunblaðið, Viðskiptaráð og Samtök atvinnulífsins sem ættu vissulega að finna sér önnur viðfangsefni en að rakka niður atvinnulífið – þetta sama atvinnulíf og heldur þeim uppi með greiðslum félagsgjalda. Augu manna hljóta senn að opnast fyrir því hve galin sú framganga er.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗