Fimm sagt upp: Ekki niðurskurður heldur hagræðing

Fimm var sagt upp hjá Kópavogsbæ í dag.

Fimm var sagt upp hjá Kópavogsbæ í dag. Samsett mynd mbl.is/Kristinn Magnússon/Egget

Fimm starfsmönnum á ólíkum sviðum Kópavogsbæjar var sagt upp störfum í dag en alls ná breytingarnar til 7,5 stöðugilda.

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogsbæjar, segir tilgang uppsagnanna vera að bæta þjónustu við bæjarbúa og að um sé að ræða framhald skipulagsbreytinga sem hófust í fyrra.

Uppsagnirnar ná til tveggja stöðugilda á umhverfissviði, eins stöðugildis á skrifstofu mannauðs og kjara og eins stöðugildis á velferðarsviði.

Að auki var eitt ómannað stöðugildi lagt niður, ekki verður ráðið að nýju í stöðugildi sem tímabundið hafði verið ráðið í og eitt stöðugildi verður minnkað í hálft stöðugildi næsta vor.

Hluti af skipulagsbreytingum

Að sögn Ásdísar nemur árlegur sparnaður vegna breytinganna 160 milljónum króna en í skriflegu svari til mbl.is kemur fram að gert sé ráð fyrir 121 milljónar króna sparnaði í fjárhagsáætlun fyrir árið 2027, að teknu tilliti til greiðslna á uppsagnarfresti starfsmanna.

„Þetta er sannarlega einhver hagræðing upp á 160 milljónir á starfsgrundvelli. Við fórum í skipulagsbreytingar fyrir ári síðan sem voru meiri og víðtækari og þetta er að einhverju framhald af því í takt við áherslur okkar og þjónustu,“ segir Ásdís.

Ásdís hefur áður sagt að ekki standi til að ráðast í niðurskurð. Hún segir aðgerðirnar lið í hagræðingu og gerir greinarmun á hagræðingu og niðurskurði.

„Það er munur á því að fara í niðurskurðarbreytingar eins og sést hefur í nærliggjandi sveitarfélögum þar sem fjölda fólks hefur verið sagt upp. Hér erum við hins vegar að betrumbæta skipulagið því við teljum að það skili sér í betri þjónustu við bæjarbúa.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab