Yrsa á eina af glæpasögum ársins

Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur fær góða umsögn í FT.

Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur fær góða umsögn í FT. mbl.is/Ásdís

Frýs í æðum blóð eftir Yrsu Sigurðardóttur er ein af fimm bestu glæpasögum ársins í Bretlandi, að mati Financial Times. Þetta var kunngjört í helgarútgáfu blaðsins.

„Yrsa sýnir hér að hún hefur fullkomin tök á því að magna upp spennu í sögu og treystir um leið enn frekar stöðu sína í fremstu röð norrænna glæpasagnahöfunda,“ segir í umfjöllun blaðsins.

Frýs í æðum blóð er eina þýðingin á listanum en hinir höfundarnir koma frá Bandaríkjunum og Skotlandi og tveir frá Írlandi.

Frýs í æðum blóð kom upphaflega út árið 2023. Í henni fléttast saman þrír ólíkir þræðir. Þar segir frá nágrannaerjum í Grindavík á milli tvennra hjóna sem fara úr böndunum. Ung kona er óvænt ráðin sem afleysingakokkur á loðnuskip og brátt fara undarlegir atburðir að gerast um borð og torkennilegur beinafundur á sér stað í Reykjavík.

Gagnrýnandi Financial Times, Barry Forshaw, þykir einn helsti sérfræðingur Breta í norrænum glæpasögum en hann skrifaði meðal annars bókina „The Man Who Left Too Soon“ um Stieg Larsson sem kom út árið 2010. Þar nefnir hann keppinauta Larssons á sviði norrænna glæpasagna og tiltekur þar sérstaklega Yrsu og Arnald Indriðason, auk sjö annarra höfunda frá Noregi og Svíþjóð.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab