Öll teppi búin á bráðamóttökunni

„Bráðamóttakan, seint á sunnudagskvöldi. Öll teppi búin á deildinni. Það er víst þekkt áskorun í lok dags að það þurfi mikla leit til að finna slíkt,“ sagði Ingibjörg. Ljósmynd/Colourbox

Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að gengið hafi verið of langt í hagræðingu í heilbrigðiskerfinu og lýsir áhyggjum af því að frekari kröfur um hagræðingu bitni á þjónustu við sjúklinga og öryggi þeirra og starfsfólks.

Hún lýsti á Alþingi í dag reynslu sinni af því að hafa verið með nánum aðstandanda á Sjúkrahúsinu á Akureyri undanfarna daga. Þar hefði hún kynnst af eigin raun aðstæðum sem að hennar mati endurspegluðu fjárhagsvanda heilbrigðiskerfisins.

Ingibjörg sagði það sem stæði upp úr reynslu hennar vera framúrskarandi þjónustu, umhyggju og fagmennsku starfsfólks sjúkrahússins sem starfaði við afar krefjandi aðstæður.

„Það er búið að skera inn að beini“

Ingibjörg nefndi sem dæmi skort á einföldum nauðsynjum á sjúkrahúsinu.

„Bráðamóttakan, seint á sunnudagskvöldi. Öll teppi búin á deildinni. Það er víst þekkt áskorun í lok dags að það þurfi mikla leit til að finna slíkt,“ sagði Ingibjörg.

Þá væru hitapokar, sem gjarnan væru notaðir til að lina verki sjúklinga, af skornum skammti og teldist það happ ef einn slíkur fyndist á sjúkrahúsinu.

„Þetta kann að hljóma sem smávægilegir hlutir en segir okkur svo ótrúlega mikið um stöðuna. Þetta er veruleikinn í okkar velferðarsamfélagi árið 2026. Það er búið að skera inn að beini,“ sagði Ingibjörg.

Ingibjörg sagði Sjúkrahúsið á Akureyri rekið með verulegum halla. Þrátt fyrir það væru áfram gerðar kröfur um hagræðingu svo ríkisstjórnin gæti náð markmiði sínu um hallalausan ríkisrekstur. mbl.is/Eyþór

Gagnrýnir kröfur um frekari hagræðingu

Ingibjörg sagði Sjúkrahúsið á Akureyri rekið með verulegum halla. Þrátt fyrir það væru áfram gerðar kröfur um hagræðingu svo ríkisstjórnin gæti náð markmiði sínu um hallalausan ríkisrekstur.

Hún kvaðst vera talsmaður ábyrgra ríkisfjármála en benti á að í slíkri ábyrgð fælist einnig að tryggja að grunnþjónusta samfélagsins væri fjármögnuð með fullnægjandi hætti.

„Við getum ekki endalaust treyst á útsjónarsemi, fórnfýsi og fagmennsku heilbrigðisstarfsfólks til að bæta upp skort á fjármagni,“ sagði Ingibjörg.

Hvenær verður hagræðing að skerðingu?

Hún velti því upp hvar mörkin lægju þegar kæmi að hagræðingu í heilbrigðiskerfinu.

„Hvenær verður hagræðing að skerðingu á þjónustu og hvenær erum við farin að ganga á öryggi sjúklinga og starfsfólks?“ spurði Ingibjörg.

Hún sagði vandann ekki einskorðast við Sjúkrahúsið á Akureyri heldur ættu fleiri heilbrigðisstofnanir á landinu við sambærilegan vanda að etja.

Ingibjörg kallaði eftir því að ríkisstjórnin horfðist í augu við raunverulega rekstrarstöðu heilbrigðisstofnana landsins og tryggði þeim fjármagn í samræmi við þær áskoranir sem þær stæðu frammi fyrir og þau verkefni sem þeim bæri að sinna.

Megum ekki missa sjónar á tilganginum

Árangur í ríkisfjármálum yrði að hennar mati ekki eingöngu mældur í afkomu ríkissjóðs heldur einnig í gæðum þeirrar þjónustu sem fólkinu í landinu væri veitt.

„Við megum ekki missa sjónar á því fyrir hvern við erum að reka þetta samfélag,“ sagði Ingibjörg að lokum.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab