Kolefnisgjald á fiskiskip afnumið í Noregi

Hluti uppsjávarflota Pelagia við fiskvinnslu í Herøyholmen. Norskar útgerðir fá frá áramótum undanþágu frá greiðslu kolefnisgjalds. Ljósmynd/Pelagia

„Fiskebåt náði fram kröfu sinni um undanþágu frá kolefnisgjaldi,“ segir í nýrri færslu á vef samtaka norskra útgerðarmanna (Fiskebåt).

„Kolefnisgjald á fiskiskipaflotann verður afnumið um áramótin. Þar með hverfur gjald sem hefur haft þveröfug áhrif en þau sem því var ætlað,“ segir þar jafnframt.

Jørn Prangerød, samskiptastjóri Fiskebåt, segist fyrir hönd norska sjávarútvegsins færa Miðflokknum (Senterpartiet) miklar þakkir fyrir að hafa tryggt framgang þess í fjárlagaviðræðunum að kolefnisgjald á fiskiskipaflotann yrði afnumið.

„Það þýðir að nú er breiður meirihluti á norska þinginu, allt frá hægri til vinstri, fyrir afnámi gjalds sem hefur unnið gegn eigin markmiðum. Það er mjög jákvætt,“ segir hann.

Um leið er gagnrýnt að í nýju samkomulagi um fjárlögin hafi rauðgrænu flokkarnir í Noregi aukið kröfur um íblöndun lífeldsneytis.

„Fræðilega séð ætti það að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá fiskiskipaflotanum. Þar sem lífeldsneyti er umtalsvert dýrara óttumst við hins vegar að kostnaðurinn verði of mikill og að áfram borgi sig að taka eldsneyti erlendis án greiðslu gjaldsins og án þess að þurfa að uppfylla kröfur um íblöndun lífeldsneytis,“ segir Fiskebåt.

Prangerød segir að með tvöföldun kröfunnar um íblöndun lífeldsneytis sé hætt við að ávinningurinn verði að hluta að engu og að Græningjar (MDG) nái á endanum minni samdrætti í losun en ella hefði verið mögulegt.

„Það er jú ekki af illvilja sem fiskiskip koma við í erlendum höfnum til að taka eldsneyti, heldur er það nauðsynlegt til að tryggja arðsemi og samkeppnishæfni norsks sjávarútvegs,“ áréttar hann.

Hins vegar eigi eftir að koma í ljós hvar sársaukamörkin liggi.

„En eitt er alveg víst: Það verða engin græn umskipti með rauðar tölur í rekstrarreikningnum,“ segir Prangerød.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab