FIFA-vellir rísa í Reykjanesbæ og Norðurþingi
Stjórn KSÍ hefur samþykkt tillögu nefndar um val á tveimur verkefnum vegna uppbyggingar FIFA Arena knattspyrnuvalla á Íslandi. Alls bárust 47 umsóknir.
Neðangreindar umsóknir urðu fyrir valinu:
- Umsókn nr. 19 – Knattspyrnudeild Keflavíkur / Reykjanesbær / Háaleitisskóli
- Umsókn nr. 39 – Norðurþing
Faglegt og samræmt matsferli
Stjórn KSÍ skipaði sérstaka nefnd 17. september 2026 til að fara yfir umsóknirnar 47, leggja á þær faglegt mat og undirbúa tillögur fyrir stjórn KSÍ, sem tók endanlega ákvörðun um val verkefna.
Í vinnu sinni fór nefndin yfir forskrift FIFA, forsendur FIFA Arena verkefnisins, umsóknargögn og fylgigögn umsækjenda. Nefndin vann jafnframt að samræmingu skorkorts og einkunnagjafar þannig að umsóknir yrðu metnar á sambærilegum og faglegum grunni.
Við matið var sérstaklega horft til markmiða FIFA Arena um að skapa örugga, aðgengilega og góða aðstöðu fyrir börn og ungmenni, einkum á svæðum þar sem sambærilega aðstöðu skortir. FIFA Arena vellirnir eru 20 x 40 metrar og ætlaðir bæði fyrir skipulagða knattspyrnuiðkun og frjálsan leik.
Tillaga nefndarinnar til stjórnar byggði á samantekt einkunna og einstaklingsbundnum skorkortum, ásamt heildaryfirferð á styrkleikum umsóknanna og þeim fyrirvörum sem umsóknargögnin gáfu tilefni til.
Um FIFA Arena
FIFA Arena er alþjóðlegt verkefni FIFA sem miðar að uppbyggingu minni knattspyrnuvalla um allan heim. Markmiðið er meðal annars að bæta aðgengi barna og ungmenna að knattspyrnu og skapa öruggt umhverfi til íþróttaiðkunar og leiks.
FIFA og KSÍ standa straum af flutningi, efni og uppsetningu vallanna en sveitarfélag eða íþróttafélag sér meðal annars um staðsetningu, undirbúning undirlags og umhverfisfrágang. Eigandi vallarins ber síðan ábyrgð á rekstri hans, viðhaldi og umhirðu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗