Fór á kostum og taphrinan á enda
Jayson Tatum skoraði 41 stig þegar Boston Celtics batt enda á fjögurra leikja taphrinu með 131:116-útisigri á Washington Wizards í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.
Boston var með 80:49 forystu í hálfleik en sá forskotið minnka niður í fimm stig áður en sigurinn var í höfn. Paul George bætti við 28 stigum fyrir Boston.
Cooper Flagg skoraði 24 stig og jafnaði sitt besta með 12 stoðsendingum þegar Dallas Mavericks vann Denver Nuggets 120:101 á útivelli.
Dallas er með fjóra sigra í röð, en Nikola Jokić hjá Denver var með 18 stig, 11 fráköst og fimm stoðsendingar.
Úrslit næturinnar:
Orlando Magic 86:104 Detroit Pistons
Washington Wizards 116:131 Boston Celtics
Denver Nuggets 101:120 Dallas Mavericks
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗