Starfslok hjá Isavia við 67 ára aldur stóðust lög
Hæstiréttur sýknaði í dag Avians og Isavia Innanlandsflugvelli af bótakröfum tveggja fyrrverandi starfsmanna sem létu af störfum eftir að hafa náð 67 ára aldri.
Rétturinn taldi starfslokin hafa verið málefnaleg við þær aðstæður sem sköpuðust í kórónuveirufaraldrinum og að fyrirtækin hefðu gætt meðalhófs. Bæði félögin eru dótturfélög Isavia.
Með dómunum snéri Hæstiréttur við niðurstöðu Landsréttar frá því í nóvember í fyrra. Landsréttur hafði dæmt Avians, sem þá hét Isavia ANS og sér um flugleiðsögu- og flugumferðarstjórnarkerfi á íslenska flugstjórnarsvæðinu, til að greiða öðrum manninum 4,5 milljónir króna í bætur og Isavia Innanlandsflugvelli til að greiða hinum 3,5 milljónir.
Héraðsdómur hafði áður sýknað félögin í báðum málum.
Starfslokaaldurinn lækkaður í faraldrinum
Isavia lækkaði almennan starfslokaaldur hjá samstæðunni úr 70 árum í 67 vorið 2020 þegar nær allt flug til og frá landinu hafði lagst af. Á sama tíma var ákveðið að segja upp allt að 110 starfsmönnum móðurfélagsins.
Hæstiréttur taldi að við þessar aðstæður hefði verið málefnalegt að verja störf yngra fólks með því að miða starfslok við þann aldur þegar réttur til lífeyris hafði stofnast. Hæstiréttur taldi að það sjónarmið hefði meðal annars legið að baki ákvörðuninni þótt þess væri hvorki getið í fundargerð stjórnar Isavia né í starfslokareglunum sjálfum.
Við mat á meðalhófi leit Hæstiréttur einnig til þess að báðir mennirnir létu af störfum sex mánuðum eftir lok þess mánaðar sem þeir urðu 67 ára. Niðurstaða réttarins var því sú að starfslok þeirra hefðu samrýmst lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗