Alfreð um Frey: Ekki opnir fyrir því

Alfreð Finnbogason er yfirmaður knattspyrnumála hjá Rosenborg.

Alfreð Finnbogason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Rosenborg, segir norska félagið ekki reiðubúið að láta Frey Alexandersson þjálfara fara áður en tímabilinu lýkur. Freyr hefur verið í viðræðum við Swansea City í ensku B-deildinni.

„Við búumst ekki við því og erum ekki opnir fyrir því,“ sagði Alfreð við norsku sjónvarpsstöðina TV 2, spurður hvort Freyr gæti yfirgefið félagið þegar þrjár umferðir væru eftir af deildinni.

Alfreð sagði áhugann ekki hafa komið sér á óvart. „Þetta er hin hliðin á góðum árangri. Leikmenn, þjálfarar, allir hjá félaginu finna fyrir áhuga.“

Freyr hefði jafnframt upplýst hann um stöðuna. „Ég veit að það er áhugi á hans kröftum. Hann hefur verið hreinskilinn við mig varðandi það. Nei, þetta kom mér því ekki á óvart.“

Samkvæmt heimildum TV2 mun Freyr stýra Rosenborg gegn Molde á laugardag í mikilvægum leik í baráttunni um Evrópusæti. Hann er samningsbundinn Rosenborg til ársins 2029 og Swansea þyrfti því að greiða félaginu fyrir að fá hann til starfa.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab