Tímamótadómur í Danmörku – Leigusali mátti vísa „óvestrænum“ leigjendum út
Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 25. nóvember 2026 16:30
11 þúsund óvestrænum leigjendum verður vísað af heimilum sínum. Mynd/Getty
Hæstiréttur Danmerkur hefur sýknað leigusala af rasisma fyrir að hafa vísað „óvestrænum“ leigjendum úr íbúðum. Vísað var til laga frá árinu 2018 sem eiga að koma í veg fyrir „gettómyndun.“
Breska blaðið The Daily Mail greinir frá þessu.
Leigufélagið Boliggarden í borginni Helsingør hefur verið sýknað af kæru um mismunun þegar það vísað „óvestrænum“ leigjendum úr íbúðum árið 2020.
Samkvæmt skilgreiningu danskra yfirvalda getur „vestrænt“ fólk aðeins verið frá 27 löndum Evrópusambandsins og EES svæðisins, Sviss, Bretlands, Andorra, Mónakó, San Marínó, Vatíkansins, Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu og Nýja Sjálandi.
Samningum við leigjendur í alls 96 íbúðum var sagt upp þegar farið var í viðhaldsframkvæmdir. Flestir íbúarnir voru af erlendu bergi brotnir. Sjö fjölskyldur kærðu uppsögnina og sögðu hana byggja á útlendingaandúð.
11 þúsund rekin af heimilum sínum
Uppsögnin var hins vegar byggð á og réttlætt á grundvelli laga frá árinu 2018 þar sem segir að ef meira en helmingur íbúa í félagslegu íbúðahúsnæði séu „óvestrænir“ þá skuli brjóta upp strúktúrinn og leigja að minnsta kosti 60 prósent íbúðana á almennum markaði fyrir árið 2030. Lögunum var ætla að koma í veg fyrir „gettómyndun.“
Lögmaður leigjendanna, Eddie Khawaja, sagði úrlausnarefni dómstólsins væri einfalt. Að úrskurða um hvort að uppsögn á grundvelli uppruna leigjendanna væri hlutlaust eða ekki. Málið hefði farið í gegnum tvö dómstig leigusalanum í vil. Hæstiréttur staðfesti þá dóma.
„Við erum augljóslega mjög vonsvikin,“ sagði einn af leigjendunum, Riad að nafni. Dómurinn og lögin frá 2018 hafa einnig verið gagnrýnd af ýmsum mannréttinda og leigjendasamtökum. En samkvæmt lögunum verða um 11 þúsund leigjendur reknir úr íbúðum sínum fyrir árið 2030.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗