Gyrðir Hrafn fer frá KR - Sömdu um að rifta
KR og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson hafa komist að samkomulagi um að rifta samningi leikmannsins við félagið. Þetta staðfestir KR í tilkynningu.
Gyrðir Hrafn er uppalinn KR-ingur og hefur leikið 47 leiki fyrir meistaraflokk félagsins á ferlinum.
Hann var á láni hjá Þór á Akureyri í sumar þar sem hann stóð sig afar vel og vakti athygli fyrir frammistöðu sína.
Nú er hins vegar ljóst að Gyrðir mun ekki snúa aftur í herbúðir KR-inga eftir lánsdvölina þar sem aðilar hafa náð samkomulagi um samningslok.
„Við þökkum Gyrði kærlega fyrir góð ár í svart-hvítu og óskum honum alls hins besta á nýjum vettvangi,“ segir í tilkynningu KR.
Ekki liggur fyrir hvert næsta skref Gyrðis verður en hann er nú frjáls ferða sinna og getur samið við nýtt félag.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗