„Hann er uppreisnarseggur“
„Ég var rosalega spennt en fyrstu viðbrögð mín voru smá loddaraheilkenni,“ svarar Vigdís, létt í bragði, spurningu blaðamanns um hver fyrstu viðbrögð hafi verið við fréttunum af því að hún hefði verið valin. „En maður er fljótur að hrista það af sér og bara steypa sér í þetta."
Kvikmyndagerðarkonan Vigdís Ósk Howser Harðardóttir hefur verið valin, fyrst Íslendinga, í Werner Herzog Azores Experience, vinnustofu sem þýski kvikmyndagerðarmaðurinn Werner Herzog mun leiða á eyjunni São Miguel á Asoreyjum 4.-14. desember næstkomandi.
Vigdís er í hópi 50 kvikmyndagerðarmanna frá yfir 20 löndum sem taka þátt í vinnustofunni sem skipulögð er af Extática Cine, kvikmyndaframleiðslufyrirtæki í Barselóna á Spáni sem sérhæfir sig í alþjóðlegum kvikmyndasmiðjum og sameiginlegri kvikmyndagerð, undir leiðsögn þekktra leikstjóra.
Vinna saman í pörum
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗