„Röng skilaboð til almennra borgara“
Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, segist strax hafa fundið fyrir reiði innan lögreglunnar í kjölfar umfjöllunar um hótanir í garð lögreglumanna og hversu algengt sé að mál er varða brot gegn valdstjórninni séu felld niður.
„Strax í gærkvöldi fór ég að fá skilaboð frá lögreglumönnum sem sögðust vera titrandi af reiði og það er ofboðsleg reiði hjá lögreglumönnum í dag,“ segir hann í samtali við mbl.is.
Reiðin beinist meðal annars að ummælum Karls Inga Vilbergssonar varahéraðssaksóknara í fréttaþættinum Kveik á RÚV í gærkvöldi. Þar gaf Karl því undir fótinn að lögregluembættið á Norðurlandi eystra sendi óþarflega mörg mál til héraðssaksóknara.
Fram kom í þættinum að hlutfallslega mun fleiri tilkynningar bærust frá embættinu en öðrum lögregluembættum. Þá væri hlutfall mála sem felld eru niður jafnframt hæst þar.
Finnst ummælin undarleg
Fjölni finnst ummæli Karls vera undarleg og segir lögregluna á Norðurlandi eystra eflaust hafa þá stefnu að líða engin brot gegn lögreglumönnum og kæra því öll slík brot.
„Ég er sjálfur rannsóknarlögreglumaður í kynferðisbrotadeild og mér finnst þetta svona svipað og ef við myndum segja að það væri miklu auðveldara fyrir okkur að vinna ef færri myndu kæra nauðganir,“ segir hann.
Hann segir ummælin hljóta að hafa verið látin falla í fljótfærni en kveðst þó ekki vita hver afstaða Karls sé í raun.
„Þetta eru náttúrulega röng skilaboð til almennra borgara, að þeir ættu að fækka kærum til lögreglunnar,“ segir hann og bætir við: „Lögreglumenn eru að leita þarna til héraðssaksóknara af því að þar búast þeir við að fá aðstoð og hjálp og það er nú ástæðan fyrir því að þeir eru að kæra.“
„Þeir eru að leita réttarverndar bara eins og almennir borgarar leita til lögreglunnar,“ segir hann jafnframt.
Árásir á lögin og framkvæmdarvaldið
Að sögn Fjölnis eru árásir á lögreglumenn ekki einungis árásir á einstaklinga heldur einnig á ríkið sjálft.
„Við erum fulltrúar framkvæmdarvaldsins þarna og okkur finnst að það sé verið að ráðast á lögin og framkvæmdarvaldið,“ segir Fjölnir.
Fjölnir segir umræðuna ekki einvörðungu snúast um hótanir og brot af hálfu skipulagðra glæpasamtaka heldur einnig um að lögreglumönnum sé almennt sýnd virðing.
„Ég veit ekki hvort þeim finnst það vera ómerkileg brot, af því þetta eru lögreglumenn, þegar verið er að hóta lögreglukonum nauðgunum eða þegar lögreglumenn eru klipnir í klofið,“ segir hann.
Lögreglan hafi átt frumkvæðið
Fjölnir segir Landssamband lögreglumanna hafa að eigin frumkvæði rætt við héraðssaksóknara og lýst yfir áhyggjum af því hversu mörg mál er varða brot gegn lögreglumönnum séu felld niður.
Þá furðar hann sig á því að Karl hafi í þættinum sagst frekar vilja ræða við fulltrúa lögreglumanna en fréttamann í ljósi þess að hann hafi sjálfur aldrei boðað fulltrúa þeirra á fund.
„Allt í þessu máli hefur verið að frumkvæði Landssambands lögreglumanna og ég veit að lögreglustjórarnir á höfuðborgarsvæðinu, Norðurlandi eystra og Suðurnesjum hafa sent bréf til héraðssaksóknara til að kvarta yfir afdrifum þessara mála,“ segir hann.
„Þannig það er alveg margoft búið að ýta við héraðssaksóknara og biðja þau um að taka fastar á þessum málum.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/54/1695420.jpg)