Ráðuneytið vissi af athugasemdum Harðar í júní
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu var þegar 26. júní greint frá því að Hörður Arnarson, þáverandi forstjóri Landsvirkjunar, hefði gert athugasemdir við störf stjórnar fyrirtækisins og samskipti hennar við ráðuneytið. Ekki var talið tilefni til frekari ráðstafana að sinni.
Tæpum tveimur mánuðum síðar, 18. ágúst, hafði starfsmaður ráðuneytisins samband við stjórnarformann Landsvirkjunar til að kanna hvort lögfræðiálit sem stjórnin hafði ákveðið að afla vegna athugasemda Harðar lægi fyrir.
Þetta kemur fram í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytisins til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, dagsettu í gær og birtu á vef þingsins í dag ásamt fjölda annarra gagna um aðdraganda starfsloka Harðar.
Ekki rætt nánar um efni athugasemdanna
Það var Brynja Baldursdóttir, stjórnarformaður Landsvirkjunar, sem greindi starfsmanni ráðuneytisins frá athugasemdum Harðar í símtali 26. júní. Ekki var rætt nánar um efni athugasemdanna í símtalinu.
Eins og áður hefur verið greint frá á mbl.is hafði Hörður lagt minnisblað fyrir stjórn Landsvirkjunar 15. júní þar sem hann lýsti meðal annars áhyggjum af auknum samskiptum stjórnar við ráðuneytið utan aðalfunda, fundum stjórnar án aðkomu forstjóra og meintum afskiptum stjórnarmanna af daglegum rekstri fyrirtækisins.
Hann taldi vinnubrögðin geta skapað Landsvirkjun lagalega áhættu og varaði við þeim afleiðingum sem pólitísk afskipti gætu haft fyrir starfsemi fyrirtækisins.
Ráðherra send samantekt í september
Fundarbeiðni barst ráðuneytinu frá stjórn Landsvirkjunar 28. ágúst í kjölfar símtalsins 18. ágúst.
Stjórnarformaður og varaformaður stjórnar funduðu með starfsmönnum ráðuneytisins 11. september. Þar voru minnisblað Harðar og lögfræðiálitið sem stjórnin hafði aflað kynnt ráðuneytinu.
Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, var send samantekt um fundinn og efni málsins sama dag, líkt og áður hefur verið greint frá.
Í samantektinni kom meðal annars fram að lítið traust virtist ríkja milli stjórnar og forstjóra og að það gerði stjórninni erfitt fyrir að sinna starfi sínu.
Stjórnarformaðurinn upplýsti starfsmann ráðuneytisins 28. september um fyrirhugaða afsögn Harðar. Tilkynnt var um uppsögn hans 1. október og fundaði stjórn Landsvirkjunar með ráðherra 7. október um starfslok Harðar og næstu skref.
Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, var send samantekt um fundinn og efni málsins sama dag, líkt og áður hefur verið greint frá. mbl.is/Eyþór
Lögfræðiálit beggja aðila lágu fyrir
Í minnisblaðinu er sérstaklega gerð grein fyrir þeim upplýsingum sem ráðuneytið hafði undir höndum þegar Daði Már svaraði fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um ástæður uppsagnar Harðar á Alþingi 19. október.
Þá lágu fyrir í ráðuneytinu upplýsingar um athugasemdir Harðar auk lögfræðiálita sem stjórn Landsvirkjunar og Hörður höfðu hvort um sig aflað.
Að fenginni yfirferð þessara upplýsinga taldi ráðuneytið ekki tilefni til sérstakra ráðstafana gagnvart stjórn fyrirtækisins.
Daði Már sagði á Alþingi 19. október að ástæður uppsagnarinnar hefðu verið almenns eðlis og varðað áherslur í stjórnun fyrirtækisins en ekki stefnu þess eða framtíðarsýn.
Guðlaugur Þór sætti sig ekki við svör ráðherra og kallaði eftir frekari skýringum.
„Hér er sagan öll,“ sagði Daði þá og kvaðst engu hafa við fyrri svör sín að bæta.
Segir svörin ekki hafa verið ítarleg
Í minnisblaðinu segir ráðuneytið að tilvísun ráðherra til almennra stjórnunaráherslna hafi lotið að eðli ágreiningsins. Hann hafi meðal annars varðað verkaskiptingu stjórnar og forstjóra, samskipti þeirra og fyrirkomulag ákvarðanatöku.
Með svörum sínum hafi ráðherra staðfest að engin áform væru um sölu Landsvirkjunar og að ágreiningurinn varðaði hvorki stefnu fyrirtækisins né arðgreiðslukröfur.
Ráðuneytið tekur hins vegar fram að svör ráðherra hafi ekki falið í sér ítarlega lýsingu á athugasemdum Harðar eða samskiptum aðila vegna þeirra.
Fundað 48 sinnum með stjórnum ríkisfyrirtækja
Ráðuneytið telur samskipti sín við Landsvirkjun sambærileg við samskipti sín við önnur stór ríkisfyrirtæki.
Frá 1. apríl í fyrra til 30. október í ár átti ráðuneytið alls 48 fundi með stjórnum stærstu ríkisfyrirtækjanna. Þar af voru sjö hefðbundnir stefnumótunar- og upplýsingafundir með stjórn Landsvirkjunar.
Auk þeirra komu fundirnir 11. september og 7. október vegna athugasemda Harðar og starfsloka hans.
Ráðuneytið kveðst ekki að jafnaði kalla eftir fundargerðum stjórna ríkisfyrirtækja í reglubundnum samskiptum sínum við þau. Það útiloki þó ekki að óskað sé eftir frekari upplýsingum eða tilteknum gögnum þegar tilefni er til.
Hefur hafnað ásökunum um ósannsögli
Eins og ítarlega hefur verið fjallað um á mbl.is og í Morgunblaðinu hafa þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýnt upplýsingagjöf fjármálaráðherra um starfslok Harðar og sakað hann um að hafa gefið Alþingi villandi mynd af ágreiningnum.
Daði Már hefur hafnað þeirri gagnrýni. Hann hefur jafnframt lýst yfir trausti á stjórn Landsvirkjunar.
Stjórn fyrirtækisins hefur sömuleiðis hafnað ásökunum um óeðlileg afskipti af daglegum rekstri þess og telur yfirferð á athugasemdum Harðar ekki hafa leitt í ljós að hún hafi farið út fyrir lögbundið hlutverk sitt eða heimildir.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis samþykkti 12. nóvember að óska eftir gögnum frá bæði fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Landsvirkjun um samskipti ráðherra við stjórn fyrirtækisins og fyrrverandi forstjóra í aðdraganda starfsloka hans.
Minnisblaðið og meðfylgjandi gögn eru svar ráðuneytisins við beiðni nefndarinnar.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
