Leyfi Kaldvíkur á Seyðisfirði standa

Sjókvíaeldi Kaldvíkur á Austfjörðum.

Sjókvíaeldi Kaldvíkur á Austfjörðum. Ljósmynd/Kaldvík

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfum um að felld verði úr gildi útgefin starfs- og rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldi Kaldvíkur til sjókvíaeldis á laxi í Seyðisfirði á meðan kærumál eru til umfjöllunar hjá nefndinni.

Nefndin kom saman síðastliðinn föstudag og fjallaði annars vegar um kæru samtakanna VÁ! og eigenda tiltekinna sjávarjarða í Seyðisfirði á ákvörðun Matvælastofnunar frá 11. september síðastliðnum um að veita rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldi á laxi í Seyðisfirði með 10.000 tonna hámarkslífmassa, þar af 6.500 tonn af frjóum laxi.

Og hins vegar kæru sömu aðila á ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar frá 7. september 2026 um að veita sömu starfsemi starfsleyfi og kröfu um að fresta til bráðabirgða réttaráhrifum leyfisveitingarinnar.

Því var hafnað að fresta réttaráhrifum kærðu ákvörðunarinnar á meðan málið væri til umfjöllunar.

Kærunefndin áréttar þó í báðum málum að ýmis álitaefni séu uppi og að Kaldvík beri „alla áhættu af því að hefja starfsemi á grundvelli hins kærða leyfis á meðan ekki liggur fyrir endanleg niðurstaða um lögmæti þess“.

Úrskurði nefndarinnar má finna HÉR og HÉR.

Frétt uppfærð kl. 15:12, 2. nóvember 2026.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅