Kínverjar bálreiðir eftir sakfellingu Huawei

Höfuðstöðvar Huawei í kínversku borginni Shenzhen.

Höfuðstöðvar Huawei í kínversku borginni Shenzhen. AFP/Greg Baker

Stjórnvöld í Peking hafa gagnrýnt Bandaríkin harðlega fyrir að „bæla niður“ kínversk fyrirtæki eftir að bandarískur kviðdómur sakfelldi tæknirisann Huawei fyrir að stela viðskiptaleyndarmálum og ljúga að eftirlitsaðilum um starfsemi sína í Íran.

Huawei, sem er leiðandi framleiðandi fjarskiptabúnaðar í heiminum, hefur verið skotmark ríkisstjórnar Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Fyrirtækið var sakfellt í alríkisdómstól í New York í gær eftir þriggja mánaða réttarhöld.

Úrskurðurinn kemur á pólitískt viðkvæmum tíma fyrir Bandaríkin og Kína, en leiðtogar ríkjanna reyndu að sýna fram á það sem Trump kallaði „frábært“ samband þegar þeir hittust í kínversku borginni Shenzhen í síðustu viku.

Kviðdómendur sakfelldu Huawei í tíu af þeim tólf ákæruliðum sem fyrirtækið sætti, þar á meðal fyrir bankasvik, samsæri um að stela viðskiptaleyndarmálum og samsæri um að svíkja Bandaríkin.

Fólk í verslun Huawei í Shanghai 30. september.

Fólk í verslun Huawei í Shanghai 30. september. AFP/Hector Retamal

Kína svaraði fyrir sig í dag og sagðist „algjörlega andvígt því að Bandaríkin bæli niður og hefti kínversk fyrirtæki“. Fram kom einnig að stjórnvöldin „styðji eindregið kínversk fyrirtæki í að verja lögmæt réttindi sín og hagsmuni“.

Ríkisstjórn Trumps hefur lengi haldið því fram að hætta sé á að Huawei njósni fyrir kínversk stjórnvöld. Hún hafði áður hvatt ríki til að nota ekki innviði fyrirtækisins í nýjum 5G-farsímakerfum.

„Enginn einstaklingur eða fyrirtæki er hafin yfir lögin,“ sagði Todd Blanche, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, í yfirlýsingu eftir sakfellinguna.

„Áratugum saman stunduðu Huawei og þrjú dótturfélög þess viðskipti sín í Bandaríkjunum á grundvelli lyga og þjófnaðar.“

Todd Blanche dómsmálaráðherra.

Todd Blanche dómsmálaráðherra. AFP/Anna Moneymaker

„Nauðsynlegar lagalegar aðgerðir“ 

Huawei hafnaði í dag dómnum og sagði í yfirlýsingu að hann ætti sér hvorki stoð í lagalegu tilliti né þegar kemur að staðreyndum.

„Við munum fara ítarlega yfir viðkomandi úrskurði og grípa til allra nauðsynlegra lagalegra aðgerða til að verja réttindi okkar og hagsmuni,“ bætti fyrirtækið við.

Viðskiptavinur (til vinstri) skoðar vörur í verslun Huawei í Shenzhen.

Viðskiptavinur (til vinstri) skoðar vörur í verslun Huawei í Shenzhen. AFP/Greg Baker

Kviðdómurinn sýknaði Huawei þó af ákæru um samsæri um skipulagða glæpastarfsemi og hindrun réttvísinnar, sem fyrirtækið sagðist „fagna“ og bætti við að það „staðfesti að þessar ásakanir skorti grundvöll þegar kemur að staðreyndum og sanni þá afstöðu sem við höfum haldið fram undanfarin átta ár“.

Ákærurnar vörðuðu að hluta viðskipti Huawei við stjórnvöld í Íran.

„Huawei laug ítrekað um eðli viðskipta sinna í Íran og sagði bönkum, blaðamönnum og bandarískum stjórnvöldum ranglega að fyrirtækið aðstoðaði ekki stjórnvöld, her eða leyniþjónustu Írans,“ sagði bandaríska dómsmálaráðuneytið.

„Huawei laug að bönkum um starfsemi sína í Íran til að fá milljarða bandaríkjadala og aðgang að greiðslujöfnunarþjónustu í bandaríkjadölum, sem gerði Huawei kleift að verða öflugur þátttakandi á alþjóðlegum markaði fyrir fjarskiptaþjónustu, að hluta til vegna lyga sinna.“

Fyrirtækið var einnig sakað um að hafa reynt að ráða til sín starfsmenn bandarískra fjarskiptafyrirtækja og afla sér þannig tæknilegra upplýsinga frá þeim.

Þessi gögn eru sögð hafa gert Huawei kleift að þróa vörur svipaðar vörum keppinauta sinna, sem fyrirtækið seldi síðan á lægra verði, samkvæmt upphaflegu ákærunni.

A. Tysen Duva aðstoðardómsmálaráðherra.

A. Tysen Duva aðstoðardómsmálaráðherra. AFP/Anna Moneymaker

Úrskurðurinn sendir ótvíræð skilaboð

„Hugverkin sem var stolið voru meðal annars upplýsingar sem flokkast sem viðskiptaleyndarmál og höfundarréttarvarin verk, svo sem frumkóði og notendahandbækur fyrir netbeina, loftnetstækni og tækni til prófunar á vélmennum,“ sagði dómsmálaráðuneytið í tilkynningu.

Huawei setti meira að segja á laggirnar innra kerfi sem bauð starfsmönnum kaupauka fyrir að afla iðnaðarleyndarmála frá keppinautum, að sögn saksóknara.

„Úrskurðurinn í dag sendir ótvíræð skilaboð: Bandaríkin munu verja fyrirtæki sín, vernda launafólk sitt og standa vörð um þjóðaröryggi sitt gegn spilltum erlendum fyrirtækjum sem ljúga, svindla og stela til að koma sér áfram,“ sagði A. Tysen Duva aðstoðardómsmálaráðherra í yfirlýsingu.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab