Lögreglan á Suðurnesjum mátti ekki neita að afhenda verklagsreglur um búkmyndavélar - Þetta var ástæðan
Lögreglan á Suðurnesjum þarf að veita aðgang að verklagsreglum um búkmyndavélar. Þetta var niðurstaða úrskurðarnefndar upplýsingamála en þangað leitaði aðili sem hafði verið neitað um aðgang að reglunum.
Hafði lögreglan neitað að afhenda verklagsreglurnar á þeim forsendum að brotamenn gætu nýtt sér upplýsingarnar til að komast undan upptöku. Að mati nefndarinnar voru þetta ófullnægjandi rök enda óljóst hvernig brotamenn ættu að nýta gögn með þessum hætti, einkum í ljósi þess að samkvæmt leiðbeiningum lögreglunnar sjálfrar ber lögreglumönnum að láta viðstadda vita af upptöku þegar það eigi við og sé hægt.
Kærandinn í málinu óskaði eftir gögnum í janúar á þessu ári og fékk neitun viku síðar. Lögreglan vísaði til ákvæða upplýsingalaga um innri vinnugögn og heimild til að takmarka aðgang að upplýsingum sem varða öryggi ríkisins. Lögreglustjóri sagði í svörum til úrskurðarnefndarinnar að birting skjalanna gæti veitt brotamönnum innsýn í tæknilegar aðferðir lögreglu og þannig torveldað rannsóknir. Kærandinn benti á að upptökum væri meðal annars ætlað að tryggja öryggi þeirra sem lögreglan hefur afskipti af og því væri eðlilegt að almenningur fengi að vita hvernig að þessu sé staðið.
Nefndin fór yfir gögnin sem kærandi hafði óskað eftir. Þar kemur meðal annars fram hvenær og hvernig lögreglumenn eiga að nota búkmyndavélar, skrá upptökur og ganga frá þeim til varðveislu. Nefndin taldi skjölin ekki falla undir undanþáguheimild um vinnugögn. Þar væri að finna leiðbeiningar sem lögreglumenn fylgja við störf sín og ekkert sem benti til þess að skjölin hefðu verið samin til undirbúnings ákvörðunar í tilteknu máli, líkt og undanþáguheimildin gerir ráð fyrir.
Vissulega geti upplýsingar um skipulag löggæslu varðað öryggi ríkis en að mati nefndarinnar þurfi þó að líta til þess hvað komi í raun og veru fram í umþrættum skjölum. Þar væri að finna almennar lýsingar á notkun myndavéla. Ekki væri þar að finna upplýsingar um viðkvæm tæknileg atriði eða rannsóknaraðferðir lögreglu í smáatriðum. Lögreglumenn ráða sjálfir notkun búnaðarins og embættinu hafi ekki tekist að sýna fram á hvernig vitneskja um reglurnar geti nýst brotamönnum.
Kæran í málinu barst að liðnum kærufresti en nefndin tók málið samt til skoðunar þar sem ekkert benti til þess að kærandinn hefði verið upplýstur um rétt sinn til að kæra synjunina eða hvaða frest hann hefði til slíks. Niðurstaðan var því sú að lögreglunni á Suðurnesjum bæri að veita kæranda aðgang að eftirfarandi skjölum: Verklagsreglu og vinnulýsingu um búkmyndavélar og verklagsreglu og vinnulýsingu um myndavélabúnað, notkun og vörslu stafrænna gagna.
Úrskurðurinn féll þann 29. október sl. en var birtur í dag.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗