Sektaðir um 65 milljarða: Náði til Íslands
Svissnesku fyrirtækin Firmenich og Givaudan og bandaríska fyrirtækið International Flavors & Fragrances (IFF) voru sektuð fyrir brot á samkeppnisreglum ESB. Ljósmynd/Colourbox
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sektaði í dag þrjá af stærstu ilmefnaframleiðendum heims um samtals 471,9 milljónir evra, eða um 64,7 milljarða króna, fyrir ólögmætt samráð.
Samráðið náði til alls Evrópska efnahagssvæðisins, þar á meðal Íslands, og kann að hafa leitt til hærra verðs á dagvörum.
Svissnesku fyrirtækin Firmenich og Givaudan og bandaríska fyrirtækið International Flavors & Fragrances (IFF) voru sektuð fyrir brot á samkeppnisreglum ESB.
Rannsókn framkvæmdastjórnarinnar leiddi í ljós að fyrirtækin skiptust árum saman á viðkvæmum upplýsingum um verð, kostnað og önnur viðskiptamál. Þar á meðal voru upplýsingar um viðskipti þeirra við breska neysluvöruframleiðandann Unilever, sem er stærsti kaupandi ilmefna til framleiðslu á neysluvörum í heiminum.
Neytendur kunna að hafa greitt meira
Teresa Ribera, sem fer með samkeppnismál hjá framkvæmdastjórninni, sagði samráðið líklega hafa bitnað á viðskiptavinum fyrirtækjanna og aukið kostnað þeirra. Þeir nota ilmefnin í dagvörur á borð við snyrtivörur, þvottaefni og hreinsiefni.
„Í kjölfarið kann fólk um alla Evrópu að hafa greitt meira fyrir vikuleg innkaup sín. Það er óásættanlegt,“ sagði Ribera í tilkynningu.
Ilmefni eru notuð í þúsundir dagvara, svo sem hreinlætisvörur og þvottaefni.
Givaudan fékk hæstu sektina
Givaudan fékk hæstu sektina, 252,3 milljónir evra, eða um 34,6 milljarða króna. Sekt Firmenich nam 137,6 milljónum evra, eða um 18,9 milljörðum króna, og sekt IFF nam 81,9 milljónum evra, eða um 11,2 milljörðum króna.
Við ákvörðun sektanna tók framkvæmdastjórnin tillit til þess að öll þrjú fyrirtækin unnu með henni við rannsóknina og viðurkenndu þátt sinn í samráðinu og ábyrgð á brotinu.
Samráðið stóð frá 2019 til 2023 og náði til allra 27 aðildarríkja ESB auk Íslands, Liechtenstein og Noregs. Framkvæmdastjórnin gerði fyrirvaralausar vettvangsathuganir í mars 2023 og hóf formlega rannsókn í nóvember 2025. Hún vann að málinu með samkeppnisyfirvöldum í Bandaríkjunum, Bretlandi og Sviss.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗