Alexandra Líf kölluð inn í EM-hópinn

Alexandra Líf Arnarsdóttir.

Alexandra Líf Arnarsdóttir. mbl.is/Jóhann Ingi

Handknattleikssamband Íslands sendi frá sér tilkynningu nú rétt í þessu. Alexandra Líf Arnarsdóttir, leikmaður Hauka, hefur verið kölluð inn í landsliðshóp Íslands fyrir komandi Evrópumót.

Arnar Pétursson valdi 17 manna leikmannahóp í lok október en Alexandra Líf verður átjándi leikmaður liðsins á EM.

Línumaðurinn hefur leikið sjö landsleiki og skorað þrjú mörk. Hún bætist við hópinn í lokaundirbúningi liðsins í Svíþjóð, þar sem Ísland leikur tvo vináttulandsleiki gegn heimakonum áður en haldið er á Evrópumótið.

Alexandra var einnig kölluð inn í HM-hópinn á sama hátt í fyrra. 

„Það er ótrúlega gaman að þetta hafi þróast svona. Ég fékk bara að vita það í gær að ég væri á leiðinni hingað. Ég fór með til Færeyja og svo ætluðum við að taka stöðuna. Svo er ég allt í einu komin hingað og það er ótrúlega gaman,“ sagði Alexandra við mbl.is í fyrra.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab