Alexandra Líf kölluð inn í EM-hópinn
Handknattleikssamband Íslands sendi frá sér tilkynningu nú rétt í þessu. Alexandra Líf Arnarsdóttir, leikmaður Hauka, hefur verið kölluð inn í landsliðshóp Íslands fyrir komandi Evrópumót.
Arnar Pétursson valdi 17 manna leikmannahóp í lok október en Alexandra Líf verður átjándi leikmaður liðsins á EM.
Línumaðurinn hefur leikið sjö landsleiki og skorað þrjú mörk. Hún bætist við hópinn í lokaundirbúningi liðsins í Svíþjóð, þar sem Ísland leikur tvo vináttulandsleiki gegn heimakonum áður en haldið er á Evrópumótið.
Alexandra var einnig kölluð inn í HM-hópinn á sama hátt í fyrra.
„Það er ótrúlega gaman að þetta hafi þróast svona. Ég fékk bara að vita það í gær að ég væri á leiðinni hingað. Ég fór með til Færeyja og svo ætluðum við að taka stöðuna. Svo er ég allt í einu komin hingað og það er ótrúlega gaman,“ sagði Alexandra við mbl.is í fyrra.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/61/41/1614145.jpg)