Landsréttur hafnar kröfu Atla Helgasonar

Landsréttur.

Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Vestfjarða um að fella ekki niður sviptingu leyfis Atla Helgasonar til málflutnings fyrir héraðsdómi.

Atli var sviptur lögmannsréttindum árið 2001 eftir að hann var dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir að hafa orðið manni að bana.

Kærði til Landsréttar

Héraðsdómur Vestfjarða hafnaði 12. nóvember síðastliðinn kröfu Atla um að felld yrði niður svipting á leyfi hans til málflutnings fyrir héraðsdómi. Tveimur dögum síðar kærði hann úrskurðinn til Landsréttar.

Fram kemur í niðurstöðu Landsréttar að Atli hafi lagt fram kröfu sína á grundvelli annarrar málsgreinar 68. greinar almennra hegningarlaga þar sem kveðið er á um að hafi maður verið sviptur réttindum ótímabundið með dómi í sakamáli sé honum heimilt, fimm árum eftir uppsögu dóms, að bera undir dómstóla hvort fella skuli niður réttindasviptinguna.

Atli beindi málinu til héraðsdóms á grundvelli kafla í lögunum sem fjallar um afbrigðilega meðferð máls fyrir dómi.

„Með hinum kærða úrskurði var kröfu varnaraðila hafnað. Byggðist sú niðurstaða á því að varnaraðila hefði borið að afla umsagnar Lögmannafélags Íslands samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga nr. 77/1998 um lögmenn svo til greina kæmi að fella niður sviptingu lögmannsréttinda hans,“ segir í niðurstöðunni.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab