Ingibjörg lýsir sláandi reynslu af bráðamóttökunni: „Hvar liggja mörkin?“
Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 25. nóvember 2026 15:18
Ingibjörg Isaksen. Samsett mynd/SAk
Ingibjörg Isaksen þingmaður Framsóknarflokksins kallar eftir því að ríkisstjórnin horfist í augu við raunverulega rekstrarstöðu heilbrigðisstofnana í landinu og tryggi þeim nægt fjármagn. Í umræðum um störf þingsins á Alþingi í dag fór Ingibjörg á persónulegu nóturnar en hún hefur undanfarið verið með nánum aðstandanda á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Lýsti hún reynslu sinni af heimsókninni þangað:
„Bráðamóttakan, seint á sunnudagskvöldi. Öll teppi búin á deildinni. Það er víst þekkt áskorun í lok dags að það þurfi mikla leit til að finna slíkt,“ segir Ingibjörg.
„Litlir hlutir eins og hitapokar sem gjarnan eru notaðir til þess að lina verki sjúklinga eru af skornum skammti og telst happ ef einn slíkur finnst í húsi. Þetta kann að hljóma sem smávægilegir hlutir en segir okkur svo ótrúlega mikið um stöðuna. Þetta er veruleikinn í okkar velferðarsamfélagi árið 2026.“
Ingibjörg segir að búið sé að skera inn að beini:
„Sjúkrahúsið er rekið með verulegum halla og þrátt fyrir það eru áfram gerðar kröfur um hagræðingu til þess að ríkisstjórnin geti náð hinu margumrædda núlli í ríkisrekstri. Ég er talsmaður ábyrgra ríkisfjármála en ábyrgð felst líka í því að tryggja að grunnþjónusta samfélagsins sé fjármögnuð með fullnægjandi hætti,“ segir hún.
„Við getum ekki endalaust treyst á útsjónarsemi, fórnfýsi og fagmennsku heilbrigðisstarfsfólks til að bæta upp skort á fjármagni. En hvar liggja mörkin? Hvenær verður hagræðing að skerðingu á þjónustu og hvenær erum við farin að ganga á öryggi sjúklinga og starfsfólks?“
Þetta sé einnig staðan á fleiri heilbrigðisstofnunum:
„Ég kalla eftir því að ríkisstjórnin horfist í augu við raunverulega rekstrarstöðu heilbrigðisstofnana í landinu og tryggi þeim fjármagn í samræmi við þær áskoranir og þau verkefni sem þeim ber að sinna. Árangur í ríkisfjármálum verður ekki eingöngu mældur í afkomu ríkissjóðs heldur einnig í gæðum þeirrar þjónustu sem við veitum fólkinu í landinu. Við megum ekki missa sjónar á því fyrir hvern við erum að reka þetta samfélag.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗