Freyr: „Þetta er erfið staða að því leyti“

Freyr Alexandersson, þjálfari Rosenborg, staðfestir að Swansea hafi sýnt því áhuga að fá hann til starfa en hann ræddi við norska fjölmiðla í Þrándheimi í dag.

Freyr ku vera með samningstilboð á borðinu frá Swansea en íslenski þjálfarinn hefur umturnað gengi norska stórliðsins frá því hann tók við í sumar.

Freyr segir að staðan sem hann er í sé nánast yfirþyrmandi. Hann tekur fram að hann hafi ekki verið í leit að nýju starfi en að Swansea hafi leitað til hans.

„Mér þykir mjög vænt um Rosenborg og sérstaklega leikmannahópinn sem ég vinn með. Þetta er erfið staða að því leyti,“ sagði Freyr. „En það er draumur minn að þjálfa í enska boltanum.“

Swansea situr í áttunda sæti ensku Championship-deildarinnar en Freyr hefur komið Rosenborg úr fallbaráttu í toppbaráttu frá því hann tók við liðinu í sumar.

Áður hefur hann gert frábæra hluti með Brann, Lyngby og Kortrijk.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab