Sorgarsaga fyrrum vonarstjörnu - „Það er sárt að yfirgefa eitthvað sem maður hefur elskað alla ævi“
Emre Mor, sem á sínum tíma var talinn einn efnilegasti knattspyrnumaður Evrópu, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna um óákveðinn tíma, aðeins 29 ára gamall.
Mor var keyptur til Borussia Dortmund frá danska félaginu Nordsjælland sumarið 2016 eftir að hafa orðið yngsti leikmaðurinn til að spila fyrir Tyrkland á EM.
Hann var gjarnan kallaður tyrkneski Messi en náði aldrei að standa undir væntingum. Hann var seldur til Celta Vigo ári síðar fyrir metfé í sögu spænska félagsins.
Dvöl hans á Spáni einkenndist af agabrotum, meiðslum og óstöðugri frammistöðu. Hann lék síðar meðal annars með Galatasaray og Fenerbahce.
Mor samdi til tveggja ára við hollenska félagið NEC Nijmegen í sumar en hefur nú rift samningi sínum við félagið í samráði við forráðamenn þess vegna heilsubrests.
„Hjarta mitt vill enn spila en líkami minn segir mér að hann þurfi eitthvað annað núna,“ skrifaði Mor á Instagram.
„Það er sárt að yfirgefa eitthvað sem maður hefur elskað alla ævi.“
Mor, sem á að baki 15 landsleiki fyrir Tyrkland, útilokar þó ekki að snúa aftur á knattspyrnuvöllinn einn daginn.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗