Trump vill nýja tolla á ESB og Kína

Trump Bandaríkjaforseti.

Trump Bandaríkjaforseti. AFP

Bandarísk stjórnvöld kynntu í dag tillögur um allt að 20% tolla á vörur frá 14 ríkjum og efnahagssvæðum, þar á meðal Evrópusambandinu og Kína.

Tillögurnar koma í kjölfar margra mánaða rannsóknar á meintri umframframleiðslu og eru nýjasta skref Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í að endurmóta viðskiptasambönd Bandaríkjanna.

Háttsettur bandarískur embættismaður, sem ræddi við fjölmiðla í skjóli nafnleyndar, sagði tillögurnar byggðar á því mati að ríkin og efnahagssvæðin ýttu undir framleiðslu og byggðu upp framleiðslugetu án tillits til raunverulegrar eftirspurnar og lögmála markaðarins.

Almenningi gefst kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar áður en tollarnir taka gildi. Að sögn embættismannsins taka tillögurnar mið af gildandi viðskiptasamningum.

Hæstu tollarnir á vörur frá Kína og Víetnam

Tillögurnar ná til Bangladess, Evrópusambandsins, Indlands, Indónesíu, Japans, Kambódíu, Kína, Malasíu, Singapúr, Suður-Kóreu, Sviss, Taívans, Taílands og Víetnams.

Lagt er til að tollar á vörur frá Kína og Víetnam verði 20%, sem er hæsta hlutfallið í tillögunum. Samkvæmt embætti viðskiptafulltrúa Bandaríkjanna yrðu tollarnir 18% á vörur frá Kambódíu og Indónesíu og 17% á vörur frá Indlandi.

Hjá viðskiptaaðilum sem þegar hafa gert samninga við Bandaríkin, svo sem Evrópusambandinu, Suður-Kóreu og Taívan, yrðu tollarnir að jafnaði að hámarki 15%.

Í sérstakri tilkynningu lagði embætti viðskiptafulltrúans einnig til viðbótartolla á vörur frá Brasilíu, þar á meðal flugvélar. Tillagan byggist á því mati bandarískra stjórnvalda að Brasilía hafi ekki brugðist nægilega við áhyggjum þeirra af viðskiptaháttum landsins.

Trump hefur beitt tollum jafnt gegn bandamönnum og andstæðingum Bandaríkjanna. Tollarnir eru liður í viðleitni hans á öðru kjörtímabili til að endurmóta heimsviðskipti með því að þrýsta á önnur ríki að kaupa bandarískar vörur eða færa framleiðslu sína til Bandaríkjanna.

Tillögurnar fela í sér nokkra tilslökun fyrir þá sem þegar hafa gert tollasamninga við stjórn Trumps. Þær gætu þó aukið spennu í aðdraganda leiðtogafundar G20-hópsins sem Trump verður gestgjafi að í Miami í desember.

„Við búumst ekki við því að þetta valdi spennu eða úlfúð“ á fundinum, sagði embættismaðurinn. „Við teljum raunar að í kjölfar þessara tilkynninga kunnum við að undirrita fleiri samninga á fundinum.“

Gætu ýtt undir verðbólgu

Áhyggjur bandarískra stjórnvalda af umframframleiðslu ná til margra atvinnugreina, þar á meðal framleiðslu rafhlaðna, sements, efnavöru og unninna matvæla, að sögn embættismannsins.

Nýju tollarnir gætu aukið þrýsting á bandarísk fyrirtæki sem þegar finna fyrir áhrifum fyrri tolla. Þá aukast líkurnar á að fyrirtæki velti kostnaðinum yfir á neytendur sem þegar eru óánægðir með háan framfærslukostnað.

Framfærslukostnaður var eitt helsta málið í nýafstöðnum þingkosningum þar sem demókratar náðu meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings af repúblikönum.

Tólf mánaða verðbólga í Bandaríkjunum mældist 3,7% í september og var nálægt þriggja ára hámarki. Stríð Trumps gegn Íran, tollar og stóraukin fjárfesting í gervigreind hafa ýtt undir verðhækkanir.

Stjórnendur bandaríska seðlabankans, sem stefnir að 2% verðbólgu til lengri tíma, segja að verðáhrif fyrri tolla Trumps séu að mestu komin fram. Nýir tollar gætu leitt til frekari verðhækkana.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab