Grímur: „Af því hef ég persónulega reynslu“
Grímur sagði í ræðu sinni að alltof oft væru lögreglumenn beittir ofbeldi við störf sín, þeim og fjölskyldum þeirra hótað ofbeldi og eignir þeirra skemmdar. Ljósmynd/Colourbox
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi yfirlögregluþjónn, segir ólíðandi að lögreglumenn þurfi að óttast um öryggi fjölskyldna sinna vegna starfa sinna. Hann hvetur til þess að vandað verði sem kostur er til rannsókna á brotum sem beinast að lögreglumönnum vegna starfa þeirra.
Grímur ræddi málið á Alþingi í dag undir liðnum störf þingsins í kjölfar umfjöllunar fréttaskýringaþáttarins Kveiks á RÚV í gærkvöldi um ofbeldi og hótanir gegn lögreglumönnum og meðferð slíkra mála hjá embætti héraðssaksóknara.
Eitt þeirra mála sem fjallað var um í þættinum varðaði Grím sjálfan.
Málið ekki talið líklegt til sakfellingar
Eins og greint var frá á mbl.is í gær voru unnin skemmdarverk á bifreið Gríms við heimili hans nokkrum dögum fyrir jól árið 2023, þegar hann starfaði enn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Spreymálningu var úðað á framrúðu bifreiðarinnar og var málið rannsakað sem brot gegn valdstjórninni þar sem talið var að verknaðurinn tengdist störfum Gríms í lögreglunni.
Þrátt fyrir að verknaðurinn hefði náðst á myndskeið og maður verið handtekinn vegna gruns um aðild að honum var málið síðar fellt niður af héraðssaksóknara þar sem það var ekki talið líklegt til sakfellingar.
Í umfjöllun Kveiks komu fram upplýsingar úr rannsóknargögnum sem bentu til tengsla málsins við annað mál frá sama ári, þegar kveikt var í bifreið annars lögreglumanns.
Grímur sagðist í þættinum sjá eftir því, í ljósi þeirra upplýsinga sem nú hefðu komið fram, að hafa ekki kært ákvörðun héraðssaksóknara um niðurfellingu málsins til ríkissaksóknara.
Grímur sagði ekki að ástæðulausu að refsivernd lögreglumanna og fleiri starfsstétta hefði verið aukin með lagabreytingunni árið 2007. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Refsivernd lögreglumanna aukin árið 2007
Grímur, sem starfaði í lögreglunni í tæpa fjóra áratugi, sagði á Alþingi í dag að lögreglustarfið væri gefandi og fjölbreytt. Alltof oft væru lögreglumenn þó beittir ofbeldi við störf sín, þeim og fjölskyldum þeirra hótað ofbeldi og eignir þeirra skemmdar.
Hann rifjaði upp að árið 2007 hefði ákvæðum almennra hegningarlaga um brot gegn valdstjórninni verið breytt til að auka refsivernd lögreglumanna og annarra opinberra starfsmanna sem hefðu lögbundna heimild til líkamlegrar valdbeitingar.
Með breytingunni hefði hámarksrefsing fyrir tiltekin brot gegn þessum starfsmönnum verið hækkuð úr sex ára fangelsi í átta ár.
Frumvarpið hefði verið lagt fram af Birni Bjarnasyni, þáverandi dómsmálaráðherra. Tilefni lagabreytingarinnar hefði meðal annars verið að refsingar fyrir brot af þessu tagi hefðu að jafnaði verið við neðri mörk refsirammans og því hefði verið talin ástæða til að auka refsiverndina.
Vill ekki taka undir frekari gagnrýni
Grímur sagði töluverða gagnrýni hafa beinst að embætti héraðssaksóknara í umfjöllun Kveiks. Hann kvaðst ekki ætla að bæta í þá gagnrýni og benti á að ríkar sönnunarkröfur væru gerðar í sakamálum.
Á ákæruvaldinu hvíldi sú skylda að gefa ekki út ákæru nema ákærandi teldi meiri líkur en minni á sakfellingu.
„Allt að einu leyfi ég mér að hvetja til þess að þegar rannsökuð eru brot sem beinast að lögreglumönnum starfs þeirra vegna sé vandað til verka eins og kostur er,“ sagði Grímur.
Kvörtun í nafni 130 lögreglumanna
Fram kom í umfjöllun Kveiks að nefnd um eftirlit með lögreglu hefði nýverið borist kvörtun í nafni 130 lögreglumanna vegna vinnubragða embættis héraðssaksóknara við rannsókn mála þar sem lögreglumenn hefðu sætt ofbeldi eða hótunum.
Á árunum 2022 til 2025 voru 414 brot gegn lögreglumönnum kærð til embættisins. Af þeim málum sem höfðu hlotið afgreiðslu höfðu um 70% verið felld niður eða rannsókn þeirra hætt.
Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari hafnaði því í samtali við Kveik að rannsóknir embættisins á málunum hefðu verið ófullnægjandi.
Óttast um öryggi fjölskyldna sinna
Grímur sagði ekki að ástæðulausu að refsivernd lögreglumanna og fleiri starfsstétta hefði verið aukin með lagabreytingunni árið 2007.
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst og lögreglumenn óttast öðru fremur um öryggi fjölskyldna sinna. Af því hef ég persónulega reynslu,“ sagði Grímur og bætti við: „Það er ólíðandi.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
