Tæplega 40 einkaflugferðir vekja spurningar
Gianni Infantino, forseti FIFA, alþjóðaknattspyrnusambandsins, fór í að minnsta kosti 39 einkaflugferðir á 115 dögum og heimsótti 32 lönd, samkvæmt rannsókn BBC Sport.
Frá 28. júlí ferðaðist hann um það bil 165.500 kílómetra og varði nærri níu dögum í lofti. Gagnrýnendur hafa velt því fyrir sér hvort ferðirnar hafi tengst kosningabaráttu hans fyrir endurkjör í mars.
„FIFA hefur engar reglur um fjármögnun kosningabaráttu, svo forsetinn getur haldið því fram að hann sé þar í opinberum erindagjörðum á sama tíma og hann notar ferðirnar óbeint í kosningabaráttu sína,“ sagði Miguel Maduro, fyrrverandi yfirmaður stjórnarhátta hjá FIFA, við BBC Sport.
FIFA mótmælti ekki fjölda flugferðanna. Sambandið sagði að á Infantino hvíldi „lögbundin skylda til að viðhalda og efla góð tengsl“ við aðildarsambönd og að öll ferðalög hans hefðu samræmst reglum þess.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗