Jón Pétur með sterk skilaboð: „Ég vil ekki mæta í fleiri jarðarfarir ungra manna“

Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi skólastjóri, segist að jafnaði hafa farið annað hvert ár í jarðarför ungs manns úr hópi fyrrverandi nemenda sinna síðastliðin 20 ár.

Hann kallar eftir því að vandi ungra karla í íslensku samfélagi fái meiri athygli. Jón Pétur gerði málið að umtalsefni undir dagskrárliðnum störf þingsins á Alþingi í dag og rifjaði upp erfiðar stundir þegar hann hefur þurft að kveðja fyrrverandi nemendur sína.

„Þessar stundir í kirkjunni eru alltaf jafn sárar. Fjölskyldur og vinir sitja eftir í sorg með ótal spurningar. Á skólaárunum mynduðust sterk tengsl á milli okkar sem stundum reyndi á, enda fjör að vera ungir menn,“ sagði hann.

„Þeir voru ólíkir innbyrðis en áttu það allir sameiginlegt að vera ungir karlmenn. Þeir áttu sína drauma og væntingar en á lífsleiðinni lentu þeir í erfiðleikum sem þeim þótti erfitt að yfirstíga.“

Jón Pétur benti á að sjálfsvíg væru meðal helstu dánarorsaka ungra karla. Alþjóðadagur karla hefði verið 19. nóvember síðastliðinn en hann hefði nánast ekkert orðið var við umfjöllun um daginn þrátt fyrir að tilefnin væru ærin.

„Drengir standa stúlkum langt að baki í menntun. Sjálfsvíg karla eru margfalt fleiri. Karlar lifa nokkrum árum skemur. Mikill meiri hluti þeirra sem farast í vinnuslysum eru karlar. Mun fleiri karlar eru heimilislausir og 90–95% fanga eru karlar,“ sagði hann.

Jón Pétur sagði þetta aðeins fáein dæmi um það hvar verulega hallaði á karla í samfélaginu.

„Þetta eru ekki bara tölur í skýrslum. Þetta eru synir okkar, bræður, feður, frændur og vinir. Ég vil ekki mæta í fleiri jarðarfarir ungra manna sem áttu allt lífið fram undan og voru elskaðir af sínum.“

Hann lagði áherslu á að með því að beina sjónum að vanda ungra karla væri ekki verið að gera lítið úr öðrum samfélagslegum vandamálum.

„Við eigum ekki fyrst að veita þessum ungu mönnum athygli þegar við fylgjum þeim til grafar. Gerum miklu betur.“

---

Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab