Atli Helgason fær ekki lögmannsréttindi sín aftur

Ágúst Borgþór Sverrisson

Miðvikudaginn 25. nóvember 2026 14:59

Atli Guðjón Helgason. Mynd: Fréttablaðið

Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Vestfjarða um að hafna kröfu manns um að sviptingu lögmannsréttinda hans verði aflétt. Lögmaðurinn fyrrverandi sem í hlut á er Atli Helgason en hann var árið 2001 dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir að verða Einari Erni Birgissyni að bana og var  jafnframt sviptur leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi. Hann hefur ítrekað reynt að fá réttindin aftur en án árangurs.

Úrskurður Landsréttar var kveðinn upp 23. nóvember 2026. Niðurstaðan byggist einkum á því að Atli hafði ekki aflað lögbundinnar umsagnar Lögmannafélags Íslands áður en hann fór fram á að réttindasviptingunni yrði aflétt.

Atli fékk reynslulausn árið 2011. Skilorðstíma lauk árið 2015 og í nóvember sama ár veitti forseti Íslands honum uppreist æru samkvæmt þáverandi lögum.

Hann leitaði síðar til Lögmannafélags Íslands og óskaði eftir meðmælum félagsins með því að vikið yrði frá ákveðnum hæfisskilyrðum fyrir lögmannsréttindi. Félagið synjaði þeirri beiðni í febrúar 2018.

Í mars sama ár fór hann fram á að svipting lögmannsréttindanna yrði felld niður. Héraðsdómur Reykjaness varð við þeirri kröfu en Landsréttur sneri niðurstöðunni við í júní 2018.

Atli kvartaði í kjölfarið til Mannréttindadómstóls Evrópu. Málinu lauk með sátt þar sem íslenska ríkið viðurkenndi að brotið hefði verið gegn rétti hans til réttlátrar málsmeðferðar samkvæmt mannréttindasáttmála Evrópu. Sú sátt fól hins vegar ekki í sér efnislega niðurstöðu um hvort hann ætti að fá lögmannsréttindin aftur.

Taldi að Lögmannafélagið ætti ekki að hafa úrslitavald

Í nýjustu kröfu sinni byggði maðurinn meðal annars á því að uppreist æra hefði fært honum aftur borgaraleg réttindi og að lagabreytingar frá árinu 2018 gætu ekki skert þá réttarstöðu með afturvirkum hætti. Hann vísaði jafnframt til stjórnarskrárákvæðis um atvinnufrelsi og taldi að ekki væri heimilt að láta Lögmannafélag Íslands hafa úrslitavald um hvort hann fengi að starfa sem lögmaður.

Hann benti einnig á að hann hefði haft forræði á eigin fjárhag frá árinu 2004 og að taka yrði mið af því þegar fjallað væri um gjaldþrot hans árið 2001.

Samkvæmt lögum um lögmenn eru tvö almenn hæfisskilyrði sérstaklega til skoðunar í málinu. Annars vegar að umsækjandi hafi aldrei verið úrskurðaður gjaldþrota og hins vegar að hann hafi aldrei hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir 18 ára aldur. Atli uppfyllir hvorugt skilyrðið.

Lögin heimila þó undantekningar. Til þess þarf meðal annars umsögn Lögmannafélags Íslands. Með lagabreytingu árið 2018 var orðið meðmæli jafnframt tekið út og umsögn sett í staðinn. Munurinn er sá að umsögn félagsins er ekki bindandi fyrir þann sem tekur endanlega ákvörðun.

Héraðsdómur taldi að Atli hefði ekki aflað slíkrar umsagnar og að bréf félagsins frá árinu 2018 gæti ekki komið í hennar stað. Það hefði verið samið samkvæmt eldri lagaákvæðum og í öðrum tilgangi.

Landsréttur tók undir þá niðurstöðu. Samkvæmt úrskurðinum hvílir sú skylda á þeim sem sækist eftir lögmannsréttindum, einnig þeim sem óskar eftir að fyrri réttindasviptingu verði aflétt, að afla umsagnar félagsins.

Þar sem það hafði ekki verið gert var kröfunni hafnað. Landsréttur tók því ekki efnislega afstöðu til þess hvort maðurinn uppfyllti að öðru leyti skilyrði fyrir endurheimt lögmannsréttindanna.

Úrskurður héraðsdóms var staðfestur og kærumálskostnaður ekki úrskurðaður.

Úrskurði héraðsdóms og Landsréttar í málinu má lesa hér. 

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab