Slökkva strax í kjaftasögunum
Dominic Calvert-Lewin er sagður nálægt því að skrifa undir nýjan samning við Leeds.
Framherjinn hefur átt góðu gengi að fagna í treyju Leeds frá því hann kom frá Everton fyrir síðustu leiktíð og hefur undanfarið verið mátaður við Arsenal og Manchester United.
Leeds virðist þó ætla að binda endi á allar vangaveltur um framtíð hans með því að fá hann til að skuldbinda sig félaginu til lengri tíma.
Núgildandi samningur Calvert-Lewin, sem er 29 ára gamall, rennur út sumarið 2028.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗