Jón Ívar vill koma á fót nýrri heilbrigðisstétt á Íslandi – „Mönnunarvandinn kallar á fleiri en eina lausn“
Jón Ívar Einarsson læknir leggur til að komið verði á fót nýrri heilbrigðisstétt á Íslandi að bandarískri fyrirmynd. Um er að ræða svokallaða læknafulltrúa (e. physician assistant) sem geta sinnt ýmsum verkefnum lækna án þess að hafa lokið fullu læknanámi.
Jón Ívar fjallar um þetta í pistli í Morgunblaðinu í dag en hann hefur sjálfur góða reynslu af samstarfi við slíka starfsmenn í Bandaríkjunum.
„Við þurfum að bæta starfsskilyrði, efla menntun og halda betur í reynslumikið starfsfólk. En við getum líka skoðað nýjar leiðir,“ segir hann.
Í Bandaríkjunum tekur sérnám læknafulltrúa um 27 mánuði að loknu grunnnámi og hefur fjöldi þeirra þar í landi nær tvöfaldast á undanförnum áratug.
Geta greint sjúkdóma og ávísað lyfjum
„Starfssviðið er vítt. Læknafulltrúar taka sjúkrasögu, skoða sjúklinga, greina og meðhöndla sjúkdóma, panta rannsóknir og túlka niðurstöður. Þeir gera meðferðaráætlanir, sinna eftirfylgd og veita ráðgjöf um forvarnir.“
Þá geta þeir ávísað lyfjum og aðstoðað við skurðaðgerðir, þó að heimildir þeirra séu mismunandi eftir ríkjum.
Jón Ívar telur að læknafulltrúar gætu meðal annars nýst vel í skurðlækningum og á heilsugæslustöðvum.
„Verkaskipting af þessu tagi gæti gefið læknum meira svigrúm til að sinna flóknum greiningum, ákvörðunum um meðferð og aðgerðum. Sjúklingar njóta greiðara aðgengis, betri samfellu og meiri tíma til samtals.“
Vill hefja tilraunaverkefni
Jón Ívar leggur til að stjórnvöld, heilbrigðisstofnanir, háskólar og fagfélög undirbúi tilraunaverkefni hér á landi. Ráða mætti fámennan hóp reyndra læknafulltrúa með viðurkennda erlenda menntun og meta meðal annars áhrif þess á biðtíma, öryggi sjúklinga og heildarkostnað.
„Læknafulltrúar eru ekki læknar. Sjúklingar eiga að vita hvaða stétt sinnir þeim og hvernig læknir kemur að þjónustunni,“ segir hann og bætir við:
„Mönnunarvandinn kallar á fleiri en eina lausn. Ég tel að læknafulltrúar gætu orðið verðmæt viðbót við íslensk heilbrigðisteymi.“
Grein Jóns Ívars má lesa í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗