Mörkin milli ríkja og glæpahópa að fjara út
Mörkin milli ríkja og glæpahópa eru að fjara út á sama tíma og öryggisógnir færast í sífellu nær Íslandi, að sögn Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra.
Þetta segir hún í samtali við mbl.is í dag að lokinni undirskrift samninga sem ætlaðir eru til eflingar viðbragðs- og eftirlitsgetu Landhelgisgæslu Íslands og ríkislögreglustjóra.
Snúa samningarnir sérstaklega að eftirliti með ómönnuðum loftförum og bættri viðbragðsgetu sérsveitar ríkislögreglustjóra með kaupum á sérútbúnum bifreiðum.
Ríkisstjórnin undirbúin
Spurð um stöðu Íslands í varnarmálum í ljósi aukins þunga í dróna- og tölvuárásum segir Þorbjörg ríkisstjórnina og önnur stjórnvöld undirbúin fyrir þær ógnir en að sífellt sé verið að skoða hvað betur mætti fara og hvar veikleikar Íslands liggja.
„Það er auðvitað hluti af því sem við erum að gera hérna í dag, að efla viðbragðsgetu ríkislögreglustjóra, með kaupum á búnaði, og eftirlitsskyldu Landhelgisgæslunnar. Við erum að horfa á innlent öryggi og innlendar varnir en í samspili kemur ógnin að utan,“ segir hún.
„Öryggisógnirnar eru meiri en þær voru og þær færast alltaf nær og nær,“ segir hún jafnframt.
Aðhaldið er mjög lítið
Samningurinn við Landhelgisgæsluna hljóðar upp á 160 milljónir króna en Georg Kr. Lárusson forstjóri stofnunarinnar sagði nýverið í Spursmálum að um 900 milljóna króna skerðing á fjárheimildum blasir við henni á næsta ári.
Tímabundið framlag upp á 665 milljónir fellur niður og stofnunin þarf jafnframt að mæta almennri aðhaldskröfu upp á rúmar 300 milljónir.
„Landhelgisgæslan, rétt eins og lögregla, er í samhengi við allt aðhald. Aðhaldið er mjög lítið,“ segir hún aðspurð um fjárheimildir Landhelgisgæslunnar.
„Auðvitað óska stofnanir, skiljanlega, alltaf eftir því að tímabundnar heimildir verði varanlegar en það fara um 8 milljarðar á ári í Landhelgisgæsluna þannig að það er fjárfest myndarlega í gæslu landsins í gegnum þessa stofnun,“ segir hún.
„En nú í dag erum við í fjárfestingu upp á nokkur hundruð milljónir, meðal annars í þágu Landhelgisgæslunnar, sem sýnir að við erum mjög með hugann við þetta verkefni,“ segir hún jafnframt.
Þyrlan alltaf til skoðunar
Á sama tíma og fjárheimildir Landhelgisgæslunnar skerðast þá vantar hana fjórðu þyrluna til að bæta viðbúnað vegna björgunar langt úti á sjó.
„Kaupin á fjórðu þyrlunni eru auðvitað óskastaða að komast í en það er fjárfesting upp á rúman milljarð á ári hverju og kannski ekki eitthvað sem er stokkið í en hún er til umræðu og alltaf til skoðunar,“ segir Þorbjörg að lokum.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
