Áfrýja sýknudómi yfir Georgios Ntentes
Georgios Ntentes mætir í Héraðsdóm Reykjaness í september. mbl.is/Árni Sæberg
Embætti ríkissaksóknara hefur ákveðið að áfrýja sýknudómi Héraðsdóms Reykjaness yfir Georgios Ntentes sem ákærður hafði verið fyrir manndráp með því að hafa orðið Edilsson Martins Zingara, portúgölskum manni, á heimili hans við Skjólbraut á Kársnesi í Kópavogi í nóvember í fyrra.
Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari staðfestir þetta við mbl.is.
Héraðsdómur klofanaði í málinu og taldi einn af þremur dómurum að sannað þætti að Ntentes hefði orðið Zingara að bana. Meirihlutinn taldi hins vegar verulegan vafa leika á um sekt hans. Meðal annars var bent á að spurningum væri ósvarað um blóðug skóför eftir tvenn ólík skópör, skort á blóðummerkjum í bifreið hans og að lögregla hefði ekki rannsakað sérstaklega hvort aðrir gætu hafa framið morðið.
Samkvæmt ákæru var Georgios sakaður um að hafa ráðist á manninn og veitt honum stungu- og skurðáverka, auk áverka á hálsi, með þeim afleiðingum að hann lést af miklu blóðtapi. Georgios neitaði sök.
Við rannsókn málsins var í fyrstu talið að maðurinn hefði hugsanlega veitt sér áverkana sjálfur. Georgios, sem þekkti hinn látna og hafði verið með honum kvöldið sem ákæran tók til, var handtekinn nokkrum dögum eftir að maðurinn fannst. Hann sat um tíma í gæsluvarðhaldi og var síðan látinn laus en var síðar úrskurðaður í gæsluvarðhald á ný.
Aðalmeðferð málsins hófst í lok september og lauk málflutningi 2. október. Ákæruvaldið krafðist sextán ára fangelsis yfir Georgios, sem hélt fram sakleysi sínu fyrir dómi.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗