Segir gjaldið geta tvöfaldað kostnað við rútuferð
Rósa gagnrýnir frekari skattlagningu ferðaþjónustunnar og segir enn fremur óljóst hvernig innheimtu gjaldsins verði háttað. Kristinn Ingvarsson
Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að fyrirhugað náttúru- og innviðagjald geti numið jafn hárri fjárhæð á hvern farþega í rútuferð um Gullna hringinn og kostnaðurinn við leigu rútunnar.
Hún gagnrýnir frekari skattlagningu ferðaþjónustunnar og segir enn fremur óljóst hvernig innheimtu gjaldsins verði háttað.
Þetta kom fram í ræðu Rósu á Alþingi í dag undir liðnum störf þingsins.
Rósa tók dæmi af rútu sem flytur 60 til 70 farþega um Gullna hringinn. Hún sagði kosta um 300 þúsund krónur að leigja slíka rútu yfir daginn, eða um 4.500 krónur á hvern farþega.
Fyrirhugað náttúru- og innviðagjald næmi hins vegar sambærilegri fjárhæð og myndi því að hennar mati tvöfalda kostnað farþeganna við ferðina.
„Hvernig ætli slík hækkun leggist í viðskiptavinina og hver verða áhrifin?“ spurði Rósa.
„Það er ekki þráðlaust net úti við Gullfoss“
Rósa gerði einnig athugasemdir við fyrirhugaða innheimtu gjaldsins. Hún spurði hvernig ætlunin væri að fá þær 2,3 milljónir ferðamanna sem hingað koma til landsins, og flestir færu að hennar sögn um Gullna hringinn, til að hlaða niður smáforriti til að greiða gjaldið.
Hún benti á að stór hópur ferðamanna, einkum þeir sem kæmu frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins, nýtti sér þráðlausar nettengingar fremur en farsímanet vegna mikils kostnaðar við gagnanotkun hér á landi.
„Það er ekki þráðlaust net úti við Gullfoss,“ sagði Rósa.
Samkvæmt frumvarpi atvinnuvegaráðherra verður gjaldið 4.500 krónur en 3.000 krónur á tímabilinu frá 1. nóvember til 31. maí. Ferðamálastofu verður falið að annast innheimtu gjaldsins og þróun stafrænnar lausnar vegna hennar. Ferðaþjónustufyrirtækjum verður jafnframt heimilt að hafa milligöngu um greiðslu gjaldsins fyrir viðskiptavini sína.
Rifjaði upp milljarðatap vegna eins skips
Rósa rifjaði í ræðu sinni upp dæmi sem hún tók á Alþingi í síðustu viku um fjárhagsleg áhrif þess að leggja ný gjöld á ferðaþjónustuna með skömmum fyrirvara.
Eins og greint var frá á mbl.is sagði Rósa þá að áætlað tekjutap vegna þess að eitt stórt skemmtiferðaskip hefði hætt komum til landsins næmi 5,5 milljörðum króna á ársgrundvelli.
Hún rakti brotthvarf skipsins til álagningar innviðagjalds á skemmtiferðaskip og gagnrýndi að þrátt fyrir þá reynslu væri stefnt að frekari skattlagningu ferðaþjónustunnar.
„Velgengni ferðaþjónustunnar síðastliðinn áratug er mikil gæfa fyrir land og þjóð en ekki vandamál eins og greinargerð frumvarpsins ber með sér,“ sagði Rósa. mbl.is/Ólafur Árdal
Velgengni ferðaþjónustunnar ekki vandamál
„Velgengni ferðaþjónustunnar síðastliðinn áratug er mikil gæfa fyrir land og þjóð en ekki vandamál eins og greinargerð frumvarpsins ber með sér,“ sagði Rósa.
Hún sagði að með frumvarpinu væri hvorki verið að reyna að stýra álagi á ferðamannastöðum á tilteknum tímum né stuðla að uppbyggingu á þeim stöðum sem gjaldtakan næði til.
„Hér er einungis verið að skattleggja mikilvægustu atvinnugreinina í tekjuöflun fyrir ríkissjóð. Þolir vinstri ríkisstjórnin ekki velgengni sem þessa?“ spurði Rósa að lokum.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

