Stjarnan sendir frá sér yfirlýsingu

Atvikið átti sér stað í Laugardalshöll.

Atvikið átti sér stað í Laugardalshöll. mbl.is/Óttar Geirsson

Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hefur áréttað að óvirðing, niðrandi ummæli og ógnandi hegðun verði ekki liðin í starfi félagsins. Yfirlýsingin kemur í kjölfar þess að áhorfandi sagði táningsstúlku, sem dæmdi leik tíu ára drengja í Laugardalshöll um helgina, að drepa sig.

Samkvæmt Vísi gerðist atvikið í leik Stjörnunnar og Tindastóls. Þjálfari mótmælti dómaraákvörðun áður en áhorfandinn lét orðin falla. Þjálfarinn baðst afsökunar eftir leikinn en áhorfandinn ekki.

„Börn eiga að geta stundað íþróttir í öruggu, jákvæðu og uppbyggilegu umhverfi. Það sama á við um unga dómara sem eru að læra og öðlast reynslu, rétt eins og iðkendur okkar,“ sagði í yfirlýsingu stjórnar og barna- og unglingaráðs deildarinnar.

Þar var foreldrum bent á ábyrgð þeirra sem fyrirmynda. „Börnin horfa til okkar og læra af því hvernig við komum fram við aðra, ekki síst þegar á móti blæs.“

Deildin hvatti foreldra til að styðja börnin óháð úrslitum og sýna mótherjum virðingu. „Leyfum þjálfurum að þjálfa og dómurum að dæma,“ sagði í yfirlýsingunni.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab