Byssumanns leitað á Tenerife

Ökumaður mótorhjóls særðist alvarlega þegar skotið var á hann með loftknúnu skotvopni þar sem hann ók um í bænum La Laguna á norðurhluta Tenerife síðdegis á mánudaginn.

Canarian Weekly greinir frá. 

Atvikið átti sér stað á götunni Rambla Fernández de la Cruz og rannsakar lögregla nú málið í því skyni að hafa uppi á þeim sem skaut.

Maðurinn varð fyrir skoti í fótlegginn en tókst engu að síður að komast að bensínstöð í nágrenninu þar sem hann leitaði aðstoðar starfsfólks.

Lögregla var kölluð á vettvang eftir tilkynningar um það sem virtist vera skot eða sprenging. Þegar lögreglumenn komu á staðinn fundu þeir manninn með talsverða áverka á fæti. Talið er að hann hafi orðið fyrir skotfæri úr loftknúnu vopni.

Sjúkraflutningamenn hlúðu að manninum á vettvangi áður en hann var fluttur með sjúkrabifreið á háskólasjúkrahús Kanaríeyja (HUC) í La Laguna. Samkvæmt upplýsingum sem birtar voru á þriðjudag var hann enn á sjúkrahúsi vegna alvarlegra meiðsla.

Lögregla lokaði svæðinu á meðan rannsókn fór fram. Tveir eftirlitsbílar spænsku ríkislögreglunnar komu á vettvang ásamt sérfræðingum í réttarrannsóknum sem söfnuðu gögnum og rannsökuðu aðstæður.

Rannsóknin beinist meðal annars að því hvaðan skotinu var hleypt af, hver hafi verið að verki og hvort maðurinn hafi verið skotmarkið eða orðið fyrir skotinu fyrir tilviljun.

Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins og enn er óljóst hver stóð að baki árásinni. Rannsókn lögreglu stendur yfir.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab