Vilja tryggja réttindi fólks á hættustundu

„Leikreglurnar verða að liggja fyrir áður en áfallið ríður yfir; þær verða ekki samdar í miðju áfalli,“ segir í umsögninni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alþýðusamband Íslands (ASÍ), BSRB og Bandalag háskólamanna (BHM) vilja að tryggt verði í lögum að fólk sem kvatt er til starfa í þágu almannavarna á hættustundu haldi réttindum sínum gagnvart atvinnurekendum og að afkomuöryggi þess verði ekki raskað.

Þá vilja samtökin að þeim sem verða fyrir meiðslum eða tjóni við slík störf verði tryggður bótaréttur. Í fyrirliggjandi frumvarpi til almannavarnalaga er aðeins kveðið sérstaklega á um bótarétt vegna meiðsla eða tjóns á námskeiðum og æfingum en ekki við störfin sjálf á hættustundu.

Þetta kemur fram í sameiginlegri umsögn heildarsamtakanna þriggja til allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis sem birt var á vef þingsins í dag.

Skylt að gegna störfum án endurgjalds

Í 45. gr. frumvarps dómsmálaráðherra til almannavarnalaga er kveðið á um almenna borgaralega skyldu fólks á aldrinum 18 til 65 ára til að starfa án endurgjalds í þágu almannavarna á hættustundu samkvæmt fyrirmælum lögreglustjóra, að fenginni tillögu ríkislögreglustjóra.

Þeir sem kvaddir eru til starfa mega hvorki hverfa úr starfi án leyfis né yfirgefa viðkomandi lögregluumdæmi á hættustundu án samþykkis lögreglustjóra eða þess sem hann tilnefnir.

Fólk skal þó undanþegið starfsskyldunni ef heilsufar þess eða einstaklings sem það ber ábyrgð á er með þeim hætti að störfin myndu stofna heilsu eða öryggi þeirra í sérstaka hættu.

Ákvæði um almenna borgaralega skyldu til starfa án endurgjalds er þegar að finna í gildandi almannavarnalögum.

Í fyrirliggjandi frumvarpi til almannavarnalaga er aðeins kveðið sérstaklega á um bótarétt vegna meiðsla eða tjóns á námskeiðum og æfingum en ekki við störfin sjálf á hættustundu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Telja óviðunandi að réttarstaðan sé óskýr

Heildarsamtökin draga ekki í efa að stjórnvöld geti við alvarlegar aðstæður kvatt fólk til starfa í þágu almannavarna.

Þau telja hins vegar óviðunandi að lögin kveði ekki á um hvaða áhrif slík kvaðning hafi á ráðningarsamband viðkomandi, laun hans og áunnin réttindi.

Samtökin leggja því til að skýrt verði tekið fram í lögunum að ráðningarsamband, afkomuöryggi og réttindi starfsfólks haldist óskert. Stjórnvöld gætu eftir sem áður gripið til sérstakra ráðstafana, svo sem að endurgreiða atvinnurekendum kostnað sem þeir verða fyrir vegna starfskvaðarinnar.

Vísa til reynslunnar af Grindavík og faraldrinum

Samtökin vísa til reynslunnar af kórónuveirufaraldrinum og náttúruhamförunum í Grindavík. Í báðum tilvikum hafi þurft að setja sérstök lög eftir að áföllin dundu yfir, meðal annars um launagreiðslur í sóttkví og tímabundinn stuðning til greiðslu launa vegna hamfaranna í Grindavík.

Samtökin telja nauðsynlegt að fyrir fram liggi fyrir hvernig haga skuli vinnuskyldu, breytingum á verkefnum og vinnustað, vinnutíma, hvíldartíma og starfskjörum við óvenjulegar aðstæður.

„Leikreglurnar verða að liggja fyrir áður en áfallið ríður yfir; þær verða ekki samdar í miðju áfalli,“ segir í umsögninni.

Samtökin vísa til reynslunnar af kórónuveirufaraldrinum og náttúruhamförunum í Grindavík.

Samtökin vísa til reynslunnar af kórónuveirufaraldrinum og náttúruhamförunum í Grindavík. mbl.is/Kristinn Magnússon

Áttu ekki fulltrúa í stýrihópnum

Heildarsamtökin taka undir markmið frumvarpsins um að efla almannavarnir en telja mikilvægi starfsfólks og vinnumarkaðarins ekki fá nægilegt vægi í því.

Þau benda á að samtök launafólks hafi ekki átt fulltrúa í stýrihópnum sem undirbjó frumvarpið. Ekki verði heldur ráðið af greinargerð þess að leitað hafi verið eftir sjónarmiðum launafólks við greiningarvinnuna.

Samtökin vilja að heildarsamtök launafólks og atvinnurekenda eigi lögbundna aðild að samráðshópi ríkislögreglustjóra um almannavarnir og að haft verði samráð við þau við stefnumörkun stjórnvalda í málaflokknum.

Tryggja þurfi nægilega mönnun

Samtökin leggja jafnframt áherslu á að viðbúnaður samfélagsins ráðist ekki eingöngu af húsnæði, tækjabúnaði og skipulagi heldur einnig af því að nægilega margt starfsfólk með viðeigandi menntun og starfsréttindi sé tiltækt þegar á reynir.

Þau vilja því að við áhættumat og gerð viðbragðsáætlana verði sérstaklega hugað að mönnun, fagþekkingu, vinnuvernd og starfskjörum þess fólks sem heldur uppi nauðsynlegri samfélagsþjónustu.

Með breytingunum megi að mati samtakanna efla almannavarnir án þess að raska gildandi ábyrgðarskiptingu og stjórnkerfi þeirra.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab