Mannekla tefur rannsóknir á erlendum skilríkjum
Bið eftir rannsókn mikilvægra erlendra skilríkja og annarra skjala hefur stundum verið afar löng vegna takmarkaðrar rannsóknargetu skilríkjarannsóknarstofu lögreglustjórans á Suðurnesjum, einkum vegna manneklu. Ljósmynd/Colourbox
Bið eftir rannsókn mikilvægra erlendra skilríkja og annarra skjala hefur stundum verið afar löng vegna takmarkaðrar rannsóknargetu skilríkjarannsóknarstofu lögreglustjórans á Suðurnesjum, einkum vegna manneklu. Af því hafa hlotist tafir á málsmeðferð hjá íslenskum stjórnvöldum.
Kærunefnd útlendingamála telur nauðsynlegt að efla rannsóknargetu hér á landi og að starfrækt verði öflug miðlæg rannsóknareining sem geti lagt mat á áreiðanleika margvíslegra erlendra skjala, ekki aðeins vegabréfa og annarra persónuskilríkja.
Þetta kemur fram í umsögn kærunefndarinnar til allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis um frumvarp dómsmálaráðherra til breytinga á lögum um útlendinga sem birt var á vef þingsins í gær.
Telur tillögurnar ekki duga til
Kærunefndin fagnar aukinni áherslu í frumvarpinu á að staðreyna auðkenni útlendinga sem koma eða hyggjast koma hingað til lands en telur þær breytingar sem lagðar eru til ekki duga til.
Í frumvarpinu er meðal annars lagt til að það verði skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis að umsækjandi hafi auðkennt sig gagnvart íslenskum stjórnvöldum þannig að ekki leiki vafi á auðkenni hans. Þá er gert ráð fyrir að tekin verði fingraför og stafræn ljósmynd af umsækjanda.
Kærunefndin bendir á að skilríkjarannsóknarstofa lögreglustjórans á Suðurnesjum hafi sinnt erindum frá bæði Útlendingastofnun og kærunefndinni en rannsóknargeta stofunnar sé takmörkuð.
„Bið eftir slíkri rannsókn leiðir þá óhjákvæmilega til tafa á málsmeðferð hjá stjórnvöldum,“ segir í umsögninni.
Nýttist fjölmörgum stjórnvöldum
Kærunefndin telur mikilvægt að hér á landi starfi öflug miðlæg rannsóknareining sem vinni í samstarfi við sambærilegar einingar erlendis og búi yfir sérþekkingu á því að meta áreiðanleika erlendra skjala.
Þannig væri ekki aðeins unnt að rannsaka ferðaskilríki og önnur persónuskilríki heldur einnig þau gögn sem liggja til grundvallar útgáfu slíkra skilríkja, svo sem fjölskylduvottorð, fæðingarvottorð og ættleiðingarskjöl.
Slík eining gæti einnig sinnt rannsóknum á öðrum skjölum sem gefin eru út erlendis og lögð fram hér á landi til grundvallar réttindum einstaklinga.
Að mati kærunefndarinnar myndi slík rannsóknareining nýtast fjölmörgum aðilum, meðal annars lögreglu, sýslumönnum og Þjóðskrá Íslands, auk Útlendingastofnunar og kærunefndarinnar sjálfrar.
Með þessu mætti gera meðferð fjölda mála skilvirkari og hagkvæmari.
Kærunefndin telur mikilvægt að hér á landi starfi öflug miðlæg rannsóknareining sem vinni í samstarfi við sambærilegar einingar erlendis og búi yfir sérþekkingu á því að meta áreiðanleika erlendra skjala. Ljósmynd/Colourbox
Óttast að ný ákvæði tefji málsmeðferð
Kærunefndin gerir einnig athugasemdir við fyrirhugað ákvæði um að útlendingur geti aðeins haft eina umsókn um dvalarleyfi til meðferðar hjá stjórnvöldum hverju sinni.
Markmið ákvæðisins er meðal annars að koma í veg fyrir að einstaklingar geti ítrekað framlengt dvöl sína hér á landi með því að leggja fram nýjar umsóknir á meðan eldri umsóknir eru enn til meðferðar.
Kærunefndin telur orðalag ákvæðisins ekki nægilega skýrt og að fyrirhugað fyrirkomulag geti orðið til þess að flækja og tefja málsmeðferð.
Nefndin telur einfaldara að almenna reglan verði sú að litið sé á framlagningu nýrrar umsóknar sem afturköllun þeirrar fyrri. Jafnframt verði skýrt kveðið á um hvaða reglur gildi um heimild umsækjanda til áframhaldandi dvalar hér á landi meðan nýja umsóknin er til meðferðar.
Málum fjölgað en fjárveitingar skertar
Kærunefndin vekur jafnframt athygli á því að ekki verði ráðið af frumvarpinu að lagt hafi verið mat á þann kostnað sem fyrirhugaðar lagabreytingar hafa í för með sér fyrir stjórnvöld.
Ljóst sé að verkefnum Útlendingastofnunar muni fjölga og að meðal annars þurfi að gera samninga við erlenda aðila um gagnaöflun og rannsóknir.
Þá telur kærunefndin að fyrirhugaðar breytingar á ákvæðum um sjálfkrafa frestun réttaráhrifa muni leiða til þess að henni berist fleiri beiðnir um frestun. Samkvæmt frumvarpinu beri nefndinni að afgreiða slíkar beiðnir eins fljótt og auðið er og þurfi því að veita þeim forgang fram yfir önnur mál.
Þótt kærunefndin geri ekki ráð fyrir að málum fjölgi verulega vegna þeirrar breytingar einnar og sér bendir hún á að ýmsar lagabreytingar undanfarinna tveggja ára hafi þegar leitt til fjölgunar mála hjá nefndinni án þess að kostnaðarmat hafi farið fram eða fjárveitingar til hennar verið auknar.
„Þvert á móti hefur verið skorið niður fjármagn til kærunefndar síðustu ár,“ segir í umsögninni.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
