Bjarni ráðinn til FH
Bjarni Þór Viðarsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs FH í knattspyrnu og verður Jóhannesi Karli Guðjónssyni til aðstoðar á komandi tímabili. Hann tekur við af Árna Frey Guðnasyni, sem fær nýtt hlutverk innan félagsins.
Bjarni verður jafnframt aðalþjálfari 2. flokks karla. Samkvæmt tilkynningu FH er markmiðið að styrkja tengsl flokkanna og samræma leikstíl þeirra. Bjarni er uppalinn FH-ingur og varð Íslandsmeistari með liðinu 2015 og 2016 eftir atvinnumannaferil erlendis.
Árni Freyr tekur við sem yfirmaður afreks- og grasrótarstarfs og ber ábyrgð á 3. og 4. flokki karla og 2. og 3. flokki kvenna. Hann mun vinna að því að greiða efnilegum leikmönnum leið upp í meistaraflokk.
„Ég óskaði sjálfur eftir því að færa mig til innan félagsins, enda brenn ég fyrir því að hjálpa ungum leikmönnum að bæta sig. FH hefur alið upp marga frábæra leikmenn og markmiðið er að þeir verði enn fleiri,“ sagði Árni Freyr í tilkynningu félagsins.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/53/1695389.jpg)